Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 15. júlí 2026 14:30 Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur segir að mikilvægt sé að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, samtökin, fyrirtækjaeigendur og íbúa. Vísir/Vilhelm Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) sendu frá sér ályktun vegna „innbrotafaraldurs sem nú geisar í borginni“ og skora á borgaryfirvöld að taka málið föstum tökum. Greint var frá því í gær að lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafi fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglustöðin sér meðal annars um mál sem koma upp í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. Í ályktun ÍMR segir að um innbrot jafnt á heimili sem og fyrirtæki sé að ræða og virðist sem smærri fyrirtæki verði fyrir vali innbrotsþjófa. „Innbrotsþjófar stela bæði fjármunum og hlutum og valda jafnframt skemmdum, ýmist á hurðum, gluggum, húsgögnum og fleira, eða öllu framantöldu.“ Á mánudaginn var greint frá því að brotist hefði verið í sælkerabakaríið Sweet Aurora og peningum stolið og í gær hefði verið brotist inn í eldhús veitingastaða Ramen Momo og verðmætum stolið. Veitingastaðurinn hefði í kjölfarið hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnar. ÍMR segir að mikilvægt sé að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, íbúasamtökin, fyrirtækjaeigendur og íbúa. „
Greint var frá því í gær að lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafi fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglustöðin sér meðal annars um mál sem koma upp í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. Í ályktun ÍMR segir að um innbrot jafnt á heimili sem og fyrirtæki sé að ræða og virðist sem smærri fyrirtæki verði fyrir vali innbrotsþjófa. „Innbrotsþjófar stela bæði fjármunum og hlutum og valda jafnframt skemmdum, ýmist á hurðum, gluggum, húsgögnum og fleira, eða öllu framantöldu.“ Á mánudaginn var greint frá því að brotist hefði verið í sælkerabakaríið Sweet Aurora og peningum stolið og í gær hefði verið brotist inn í eldhús veitingastaða Ramen Momo og verðmætum stolið. Veitingastaðurinn hefði í kjölfarið hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnar. ÍMR segir að mikilvægt sé að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, íbúasamtökin, fyrirtækjaeigendur og íbúa. „Virkja þarf nágrannavörslu, tilkynna öll mál til lögreglu sem þarf að bregðast við með vettvangsheimsókn, og brýna fyrir íbúum og fyrirtækjaeigendum að bæta öryggi eins og kostur er við heimili sín og fyrirtæki.“ Ályktun Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur: ÍMR skorar á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldur sem nú geisar í borginni föstum tökum. Tugir tilkynninga um innbrot hafa borist til lögreglu frá mánaðamótum júní/júlí í ár, eða 61 talsins. Alls eru innbrotin 45 á varðsvæði lögreglustöðvar 1 sem sinnir verkefnum í Miðborg, Hlíðum, Vesturbæ, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi, þar af 20 í miðborginni. Um er að ræða innbrot jafnt á heimili sem og fyrirtæki, og virðist sem smærri fyrirtæki séu frekar valin. Innbrotsþjófar stela bæði fjármunum og hlutum, og valda jafnframt skemmdum, ýmist á hurðum, gluggum, húsgögnum og fleira, eða öllu framantöldu. Mikilvægt er að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, ÍMR, íbúa og fyrirtækjaeigendur. Virkja þarf nágrannavörslu, tilkynna öll mál til lögreglu sem þarf að bregðast við með vettvangsheimsókn, og brýna fyrir íbúum og fyrirtækjaeigendum að bæta öryggi eins og kostur er við heimili sín og fyrirtæki.
Ályktun Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur: ÍMR skorar á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldur sem nú geisar í borginni föstum tökum. Tugir tilkynninga um innbrot hafa borist til lögreglu frá mánaðamótum júní/júlí í ár, eða 61 talsins. Alls eru innbrotin 45 á varðsvæði lögreglustöðvar 1 sem sinnir verkefnum í Miðborg, Hlíðum, Vesturbæ, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi, þar af 20 í miðborginni. Um er að ræða innbrot jafnt á heimili sem og fyrirtæki, og virðist sem smærri fyrirtæki séu frekar valin. Innbrotsþjófar stela bæði fjármunum og hlutum, og valda jafnframt skemmdum, ýmist á hurðum, gluggum, húsgögnum og fleira, eða öllu framantöldu. Mikilvægt er að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, ÍMR, íbúa og fyrirtækjaeigendur. Virkja þarf nágrannavörslu, tilkynna öll mál til lögreglu sem þarf að bregðast við með vettvangsheimsókn, og brýna fyrir íbúum og fyrirtækjaeigendum að bæta öryggi eins og kostur er við heimili sín og fyrirtæki.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira