Viðskipti innlent

Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco

Árni Sæberg skrifar
Friðbert, Þorbjörg og Sigvaldi eru nú meðal eigenda BBA//Fjeldco.
Friðbert, Þorbjörg og Sigvaldi eru nú meðal eigenda BBA//Fjeldco. BBA//Fjeldco

Friðbert Þór Ólafsson, Sigvaldi Fannar Jónsson og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir hafa bæst við í eigendahóp BBA//Fjeldco, en þau hafa öll starfað hjá félaginu um árabil.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að í framhaldi af fjárfestingu AGRD í BBA//Fjeldco haldi félagið áfram að byggja upp breiðan hóp sérfræðinga til að þjónusta viðskiptavini í flóknum og krefjandi verkefnum.

„Við erum afar stolt og ánægð að bjóða Friðbert, Sigvalda og Þorbjörgu velkomin í eigendahópinn. Þau hafa sýnt framúrskarandi fagmennsku og forystu í sínum verkefnum og hafa gegnt mikilvægu hlutverki í þeim árangri sem BBA//Fjeldco hefur náð undanfarin ár. Við leggjum ríka áherslu á að byggja upp eigendahóp sem sameinar sérfræðiþekkingu, sterka leiðtogahæfni og drifkraft til að þróa þjónustu okkar áfram á komandi árum,“ er haft eftir Halldóri Karli Halldórssyni, faglegum framkvæmdastjóra BBA//Fjeldco.

Þá segir að Friðbert sérhæfi sig í almennum félaga- og fyrirtækjarétti ásamt kaupum og sölum fyrirtækja. Hann hafi komið að ótal mörgum flóknum og umfangsmiklum viðskiptum fyrir bæði innlenda og erlenda viðskiptavini. Friðbert hafi lokið M.L gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019, þar sem hann hafi lagt sérstaka áherslu á samspil laga og gervigreindar.

Sigvaldi sérhæfi sig í ráðgjöf við banka og fyrirtæki í tengslum við fjármögnun, sem og á sviði almenns félaga- og fyrirtækjaréttar. Hann hafi veitt ráðgjöf í mörgum af stærstu fyrirtækjaviðskiptum landsins og fjármögnun fyrirtækja seinustu ára, bæði til innlendra og erlendra viðskiptavina. Sigvaldi hafi lokið Mag. Jur. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2017 og einnig numið við Columbia háskóla á námstímanum.

Þorbjörg Ásta sérhæfi sig í samkeppnisrétti og hafi komið að fjölmörgum af stærstu samrunamálum á Íslandi á undanförnum árum. Hún búi yfir víðtækri reynslu af ráðgjöf til innlendra og erlendra fyrirtækja og hafi verið leiðandi á samkeppnisréttarsviði BBA//Fjeldco, sem hafi vaxið ört á undanförnum árum. Áður hafi hún starfað á samkeppnisréttarsviði Kromann Reumert í Kaupmannahöfn. Þorbjörg kenni jafnframt samrunaeftirlit við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hún hafi lokið M.L gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2017, að loknu B.A. námi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×