Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar 17. júlí 2026 11:02 Nú liggja fyrir lög um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Markmið einföldunar eru oft góð og gild. Hins vegar vakna spurningar um hvort verið sé að veikja úrræði sveitarfélaga og eftirlitsaðila á sama tíma og vandamál vegna slæmrar umgengni fara vaxandi. Sem íbúi hef ég sérstakar áhyggjur af því hvernig bregðast eigi við númerslausum bifreiðum, bílhræjum og öðrum lausamunum sem skildir eru eftir í íbúðarhverfum. Þetta eru ekki aðeins fagurfræðileg vandamál. Slíkir hlutir geta valdið óþrifnaði, sjónmengun og í sumum tilvikum mengunarhættu vegna olíu, rafgeyma og annarra efna. Óvissa um hver ber ábyrgðina Í umsögn Akureyrarbæjar við frumvarpið á sínum er vakin athygli á því að enn sé óljóst hvaða verkefni sitji eftir hjá sveitarfélögunum og hvernig þau verði fjármögnuð. Jafnframt er bent á að sveitarfélög fái ekki sömu þvingunarheimildir og heilbrigðisnefndir hafa haft til að bregðast við slæmri umgengni, bílhræjum og brotum á samþykktum, þrátt fyrir að þessi mál muni áfram lenda á borði sveitarfélaganna. Þetta eru mikilvægar athugasemdir. Ef sveitarfélög eiga áfram að taka við kvörtunum frá íbúum og sinna eftirfylgni vegna umhverfis- og hollustuháttamála verður að vera skýrt hvaða úrræði þau hafa í reynd til að leysa vandann. Þörf á sterkari, ekki veikari úrræðum Reynsla margra sveitarfélaga bendir til þess að vandamál vegna númerslausra bifreiða og bílhræja fari vaxandi. Íbúar víða um land þekkja dæmi um ökutæki sem standa mánuðum eða jafnvel árum saman á lóðum og almenningssvæðum án þess að endanleg niðurstaða fáist í málið. Stundum er málefnin svo umfangsmikil að þau rata í fréttir. Því vekur það furðu að á sama tíma og sveitarfélög kalla eftir öflugri heimildum skuli lagðar fram breytingar sem skapa óvissu um framkvæmd og valdheimildir. Auðvitað er eðlilegt að einfalda regluverk þegar tvíverknaður er til staðar. En einföldun má ekki leiða til þess að ábyrgðin verði óskýr eða að erfiðara verði að framfylgja reglum sem eiga að vernda umhverfi, hollustuhætti og lífsgæði íbúa. Íbúar eiga rétt á svörum Áður en breytingarnar verða samþykktar ætti að liggja skýrt fyrir: Hvaða stjórnvald ber ábyrgð á þessum málum eftir breytingarnar? Hvaða heimildir verða til staðar til að fjarlægja bílhræ, númerslausar bifreiðar og aðra lausamuni? Hvernig verður samstarfi sveitarfélaga og Umhverfis- og orkustofnunar háttað? Hver greiðir kostnaðinn þegar grípa þarf til aðgerða? Þetta eru ekki smávægilegar spurningar. Þær snúast um það hvernig við viljum hafa nærumhverfi okkar og hvort stjórnvöld hafi raunhæf úrræði til að bregðast við þegar umgengni fer úr böndum. Ef markmiðið er aukin skilvirkni þarf niðurstaðan að vera skýrari ábyrgð og sterkari framkvæmd. Íbúar eiga ekki að sitja uppi með meira af bílhræjum, verri umgengni og óvissu um hvert þeir eigi að leita þegar vandinn blasir við. Höfundur var formaður Umhverfis og samgöngunefndar Kópavogs 2023-2024. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Akureyri Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar