Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. júlí 2026 11:48 Húsnæðisvísitala hækkar í fyrsta skipti í þrjá mánuði. Vísir/Vilhelm HMS hefur birt vísitölu íbúðaverðs fyrir júní. Vísitalan hækkaði um 0,09% á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,44% á milli mánaða í maí og staðið í stað í apríl.
Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,80 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent. Íbúðaverð hefur því lækkað um 3,25% að raunvirði síðastliðið ár. Ellefu mánuði í röð hefur íbúðaverð nú lækkað að raunvirði á ársgrundvelli. Sé hækkunin sundurgreind má sjá að á höfuðborgarsvæðinu lækkaði íbúðaverð um 0,09 prósent á meðan á landsbyggðinni hækkaði verðið um 0,43 prósent. Á landsvísu hækkaði sérbýli, um 1,2 prósent, á meðan fjölbýli lækkaði. Í tilkynningu frá er talinn júlímánuður árið 2023 hefur vísitala íbúðaverðs ekki hækkað minna á ársgrundvelli síðan í byrjun árs 2011, að því er fram kemur í tilkynningu HMS. Á þeim tíma hafi fasteignamarkaðurinn verið að jafna sig eftir efnahagshrunið árið 2008 og árstaktur íbúðaverðs haldist neikvæður í rúm tvö ár samfleytt. „Íbúðaverð lækkaði þó meira að raunvirði á ársgrundvelli um nokkurt skeið frá vormánuðum ársins 2023 fram undir byrjun árs 2024, eða um allt að 6%. Á þeim tíma voru miklar vaxtahækkanir farnar að hægja verulega á verðhækkunum á markaðnum áður en Grindavíkuráhrifin tóku við. Þar áður hafði íbúðaverð þó ekki lækkað meira og lengur að raunvirði síðan á eftirhrunsárunum þegar lækkunarhrinan varði í rúm þrjú ár og íbúðaverð lækkaði um allt að 20% að raunvirði á einu ári,“ segir í tilkynningunni.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira