Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 25. júlí 2026 07:30 Hver fer í viðræður sem snúast um það að uppfylla skilyrði mótaðilans áður en samningur liggur fyrir og hvort hann verði samþykktur? Það er hins vegar nákvæmlega það sem viðræður um inngöngu í Evrópusambandið fela í sér. Nokkuð sem þarf þó ekki að koma á óvart enda lítur sambandið á umsókn um inngöngu í það sem yfirlýsingu um að ætlunin sé að ganga þar inn. Fyrir vikið snúast viðræðurnar fyrst og fremst um aðlögun að öllu regluverki og stjórnsýslu Evrópusambandsins. Hér áður fyrr fór aðlögun ríkja að Evrópusambandinu fram eftir að þau gengu í það. Norðmenn fóru til dæmis aðeins í einfaldar viðræður áður en þeir höfnuðu inngöngu í sambandið árið 1994. Þeir fóru ekki í slíka aðlögun. Síðan var aðlögunin færð fram fyrir formlega inngöngu í Evrópusambandið þegar farið var að horfa til ríkja í Austur-Evrópu. Aðlögunin er þannig hluti af því ferli að ganga í sambandið og væri orðinn hlutur þegar samningur lægi fyrir sem kjósendur gætu tekið afstöðu til. „Við myndum ekki kalla þetta samningaviðræður,“ sagði Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, í myndskeiði á samfélagsmiðlum fyrr á árinu enda snerust þær um aðlögun. Í bæklingi sem sambandið hefur gefið út um umsóknarferlið segir að sama skapi: „Viðfangsefni samningaviðræðna um inngöngu er geta umsóknarríkis til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja veru í Evrópusambandinu. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi. Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum sambandsins.“ Fram kemur að sama skapi í viðræðuramma Evrópusambandsins vegna umsóknarferlsis Íslands síðast, sem Kos staðfesti í samtali við Ríkisútvarpið 9. júní síðastliðinn að yrði sem fyrr grundvöllur viðræðnanna ef ferlið héldi áfram, að að sama skapi að það gangi út á aðlögun. „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Meira að segja kemur skýrt fram í greinargerðinni með þingsályktun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um þjóðaratkvæðið í lok sumars að viðræður um inngöngu í Evrópusambandið snúist um aðlögun. „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Vert er að hafa þetta í huga þegar Þorgerður og aðrir halda á lofti þeirri upplýsingaóreiðu að aðeins sé um að ræða einfaldar viðræður og enga aðlögun.Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar