Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2026 08:32 Azzi Fudd með bikarinn sem hún fékk fyrir að vinna þriggja stiga skotkeppni Stjörnuhelgar WNBA-deildarinnar í körfubolta. Getty/Geoff Stellfox Azzi Fudd, bakvörður Dallas Wings, vann þriggja stiga skotkeppni stjörnuleiks WNBA-deildarinnar í körfubolta og varð þar með fyrsti nýliðinn í sögu hennar til að vinna titilinn.
Fudd, sem var valin fyrst í nýliðavalinu 2026, náði í 30 af 40 mögulegum stigum í lokaumferðinni og hafði þar betur gegn Bridget Carleton sem endaði með 19 stig. „Ég var mjög stressuð en ég var líka spennt. Það er gaman að gera þetta því, og ég vil ekki hljóma montin, en þetta er auðvelt fyrir mig, bara stöðuskot. Ég þarf bara að taka boltann af grindinni og síðan er þetta í raun í vöðvaminninu. Þetta er það sem ég hef verið að gera síðan ég var ung,“ sagði Azzi Fudd. Fudd er í tíunda sæti í deildinni með 2,2 þriggja stiga körfur að meðaltali í leik á þessu tímabili. Hún þakkaði foreldrum sínum fyrir skottæknina, sérstaklega móður sinni, en skot hennar er að sögn Fudd alveg eins og hennar eigið. En Fudd sagði einnig að hæfileiki hennar til að hitta ítrekað úr skoti frá sama stað stafaði af endurhæfingu hennar vegna meiðsla. Fudd notaði líka tækifærið til að skora á sjálfan Step Curry sem er góður vinur hennar og að flestum talinn vera besti skotmaður sögunnar. „Steph, ef þú ert að hlusta. Ég er búin að vera að biðja um aðra þriggja stiga keppni við þig síðan ég var í gagnfræðaskóla. Kannski er þetta tækifærið til að fara að skipuleggja tíma og stað,“ sagði Azzi brosandi. View this post on Instagram A post shared by SportsCenter (@sportscenter)
WNBA NBA Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira