Körfubolti

Birmingham stiga­hæstur í þriðja sigri strákanna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Patrik Birmingham var stigahæstur í kvöld.
Patrik Birmingham var stigahæstur í kvöld. Mynd/FIBA

Drengjalandslið Íslands skipað leikmönnum 18 ára og yngri vann stórsigur á Úkraínu í fjórða leik liðsins í B-deild Eurobasket í aldursflokknum í kvöld.

Leikur kvöldsins var jafn framan af en Úkraína leiddi 20-17 eftir fyrsta leikhlutann. Íslenska liðið svaraði fyrir sig í öðrum leikhluta með 22 stigum gegn átta og bætti lítillega við forystuna fyrir síðasta leikhlutann.

Staðan var 57-43 fyrir fjórða leikhlutann en þar gerðu strákarnir út um vonir Úkraínu með því að skora fyrstu ellefu stig leikhlutans. Úkraína svaraði fyrir sig á lokakaflanum en það breytti litlu um niðurstöðuna.

Leiknum lauk 80-67 fyrir Ísland.

Njarðvíkingurinn Patrik Birmingham, sonur Brenton Birmingham, var stigahæstur Íslendinga með 25 stig. KR-ingurinn Benóní Andrason skoraði tíu stig og tók ellefu fráköst í leiknum.

Ísland hefur unnið þrjá leiki af fjórum hingað til á mótinu. Fyrst vannst stórsigur á Portúgal áður en Ísland lá fyrir Tékkum. Eftir það fylgdi risa sigur á Aserum áður en Úkraína vannst í kvöld.

Lokaleikur Íslands í riðlinum er við Pólland klukkan 11:00 í fyrramálið. Pólverjar hafa líkt og Ísland unnið þrjá og tapað einum, fyrir Tékkum fyrr í dag.

Annað sæti riðilsins er undir í leik morgundagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×