Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2026 07:20 DiJonai Carrington ásakaði fyrrverandi kærustu sína um ítrekað framhjáhald. @dijonai Leikmaður í WNBA-deildinni í körfubolta hefur sakað annan leikmann um að halda framhjá sér með að minnsta kosti tveimur öðrum leikmönnum. Það er óhætt að segja að þessi ásökun hafi vakið mikla athygli ekki síst þar sem viðkomandi nafngreindi leikmennina.
Allt byrjaði þetta með samfélagsmiðlafærslu körfuboltakonunnar DiJonai Carrington, sem spilar með Chicago Sky. Hún ásakaði þar fyrrum kærustu sína, NaLyssu Smith hjá Las Vegas Aces, um að halda framhjá sér. Þær hættu saman á síðasta ári og Carrington segir ástæðuna hafa verið að Smith hélt framhjá með að minnsta kosti tveimur leikmönnum. View this post on Instagram A post shared by Sportskeeda Basketball (@sportskeeda_basketball) Carrington skrifaði: „Þar sem fólk vill vera fyndið í dag ætla ég að vera bráðfyndin!“ áður en hún bætti við: „Já, Nalyssa hélt framhjá mér með þeim Deja Kelly og Aaliyah Nye+++ og mörgum fleirum,“ skrifaði Carrington. Færslan fór sem eldur í sinu um netheima og vakti strax athygli þar sem Carrington nafngreindi þær Deja Kelly og Aaliyah Nye. Carrington og Smith byrjuðu saman árið 2020 þegar þær voru liðsfélagar í Baylor-háskóla. Carrington hafði áður lýst sambandsslitum þeirra með þessum orðum: „Okkur semur vel en við erum ekki lengur saman,“ og útskýrði: „Þetta var á góðum nótum – við þroskuðumst bara í ólíkar áttir,“ sem gerir þessar nýju ásakanir að algjörri kúvendingu frá fyrri yfirlýsingu hennar. View this post on Instagram A post shared by New York Post (@nypost) Smith brást við ásökununum í beinu streymi þar sem hún spurði hvers vegna Carrington væri að koma með þessar ásakanir núna ári eftir sambandsslit þeirra. „Hvort sem það var hún sem hélt framhjá mér eða ég hélt framhjá henni þá kemur það engum við,“ sagði Smith. Hvorki Kelly né Nye hafa gefið út opinbera yfirlýsingu vegna ásakananna. Ásakanirnar ollu gríðarlegum umræðum á samfélagsmiðlum og skiptu aðdáendum í tvo hópa: þá sem studdu rétt Carrington til að tjá sig og þá sem gagnrýndu að svona einkamál væru meðhöndluð opinberlega.
WNBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira