Týndur í fjórtán daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2026 06:31 Lameck Banda hjálpaði Lecce að halda sér í Seríu A á síðasta tímabili en nú veit enginn hvar hann er. EPA/ABBONDANZA SCURO LEZZI Nánast enginn veit hvar knattspyrnumaðurinn Lameck Banda er niðurkominn, að minnsta kosti ekki vinnuveitendur hans hjá ítalska félaginu Lecce.
Banda hefur verið týndur í fjórtán daga. Ítalska A-deildarliðinu Lecce hefur nefnilega ekki tekist að ná sambandi við sambíska kantmanninn. Stjórn félagsins, liðsfélagar og jafnvel fólk í nánasta umhverfi Lameck Banda eru ráðþrota, að því er ítalska blaðið La Gazzetta dello Sport greinir frá. Banda gegndi lykilhlutverki í að tryggja Lecce áframhaldandi sæti í Seríu A síðastliðið vor en samningur hans rann út eftir tímabilið. Hann var samt ekki laus því ákvæði gaf Lecce rétt til að framlengja samninginn til júní 2027. Eftir misheppnaðar tilraunir til að ná sambandi við Banda til að semja um nýjan samning sem báðir aðilar voru sáttir við, nýtti Lecce ákvæðið engu að síður. Að sögn La Gazzetta dello Sport fékk Banda á þessum tíma ábatasamt margra ára samningstilboð frá sádiarabíska félaginu Al-Fateh, en hins vegar var tilboðið sem Lecce var boðið allt of lágt. Síðan þá hefur leikmaðurinn ekki mætt til ítalska félagsins síns en sendi í fyrstu skýringu í gegnum umboðsmenn sína. „Vandamál með vegabréfið. Ég þarf að leysa nokkur skriffinnskumál, svo kem ég aftur,“ hljóðuðu skilaboðin. Lecce nær enn ekki í leikmanninn sinn sem missti af æfingabúðunum í Austurríki. „Hver sem markmið hans eru, þá hefur hann valið verstu mögulegu leiðina til að fara,“ sagði Saverio Sticchi Damiani forseti ítalska félagsins. Það eina sem er vitað um ferðalag Banda er mynd frá 23. júlí þegar hann var myndaður á flugvellinum í Lusaka í Sambíu ásamt eiginkonu sinni. Enn veit enginn hvar hann er og ítalska keppnistímabilið hefst 17. ágúst þegar Lecce mætir Palermo í ítölsku bikarkeppninni.
Ítalski boltinn Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Fleiri fréttir Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Sjá meira