Ancelotti segir landsliðsferli Neymar lokið Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. júlí 2026 14:01 Búið spil hjá markahæsta landsliðsmanni í sögu Brasilíu. EPA/CHRISTOPHER NEUNDORF Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari Brasilíu segir kynslóðaskipti tímabær og hann mun ekki líta aftur til Neymar, Casemiro eða Danilo við valið á landsliðshópum.
Brasilía komst ekki í átta liða úrslit á HM í fyrsta sinn síðan 1990, þegar liðið féll úr leik með 2-1 tapi í sextán liða úrslitum gegn Noregi í sumar. Nú rúmum þremur vikum síðar er Ancelotti byrjaður að undirbúa næstu verkefni. Hann settist niður með brasilíska blaðinu GE Globo og ræddi framtíð landsliðsins. „Ég held að þetta HM hafi markað endalok á landsliðsferli nokkurra frábærra leikmanna. Neymar, Danilo og Casemiro, þessir leikmenn eru allir komnir yfir þrítugt en spiluðu á HM. Núna erum við að leita að nýjum leikmönnum inn í hópinn. Ég er ekki byrjaður að hugsa um HM 2030, við þurfum að einbeita okkur að næsta markmiði, sem er Suðurameríkubikarinn 2028.“ Casemiro hefur einnig spilað sinn síðasta leik með landsliðinu. Buda Mendes/Getty Images Casemiro og Danilo komu við sögu í öllum leikjum Brasilíu á HM. Neymar kom við sögu í lokaleik riðlakeppninnar, í fyrsta sinn fyrir landsliðið síðan 2023. Hann var valinn í hópinn þrátt fyrir að hafa glímt við mikil meiðsli undanfarið og gekk tárvotur af velli þegar Brasilía datt út. „Ég held að mínum tíma með landsliðinu sé lokið. Ég skráði mig á spjöld sögunnar og ég er stoltur af því,“ sagði Neymar, leikja- og markahæsti landsliðsmaður Brasilíu frá upphafi, þegar hann var spurður út í ummæli þjálfarans eftir 4-2 tap Santos gegn Universidad Central í gær. Þegar horft er til framtíðar ætlar Ancelotti samt ekki að skipta öllum eldri leikmönnum út. „Ég er ekki að segja að við þurfum að gjörbreyta öllum hópnum. Við munum halda áfram að vinna með nokkrum mikilvægum leikmönnum, sem geta haldið áfram að gefa af sér. Marquinhos [32 ára gamall miðvörður PSG] til dæmis, svo ég nefni eitthvað nafn. Fyrir mér er mikilvægt að halda í leikmenn eins og hann, sem geta haldið áfram að gefa af sér, en hugmyndin er að sjá breytingar og bjóða nýja kynslóð velkomna á sviðið.“
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira