NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2026 10:02 LaMelo Ball kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu. epa/ERIK S. LESSER Fyrrverandi NFL-leikmaðurinn Cam Newton hefur stefnt körfuboltamanninum LaMelo Ball fyrir að borga sér ekki fyrir leigu á lúxusíbúð í hans eigu. Upphæðin nemur 32 milljónum íslenskra króna.
Ball gekk í raðir Minnesota Timberwolves í sumar eftir að hafa leikið með Charlotte Hornets síðan hann var valinn í nýliðavalinu 2020. Meðan Ball lék með Hornets leigði hann íbúð af fyrirtæki sem er rekið af fjölskyldu Newtons. Í maí sakaði fyrirtækið umboðsmann Balls, Jermaine Jackson, um að skulda rúmlega tuttugu milljónir króna. Ball á að hafa leigt tvær íbúðir og leigt aðra þeirra áfram til Jacksons. Ball keypti síðan aðra íbúðina og hélt áfram að leigja Jackson hina en umboðsmaðurinn virðist hafa trassað það að borga leiguna. Í nýrri stefnu fyrirtækisins sem fjölskylda Newtons rekur er því haldið fram að Ball sé ábyrgur fyrir því sem Jackson skuldar. Ball mátti heldur ekki leigja íbúðina áfram til umboðsmannsins síns samkvæmt reglum húsfélagsins. Fyrirtækið krefur Ball um 22 milljónir króna auk ellefu milljóna í sektir til húsfélagsins. Ball hefur aftur á móti haldið því fram að hann hafi tafið það að borga leigu þar sem íbúðirnar þyrftu á endurbótum og mygluhreinsun að halda. Hinn 24 ára Ball lék í sex ár með Hornets. Hann spilaði í Stjörnuleik NBA 2022. Á síðasta tímabili var hann með 20,1 stig, 4,8 fráköst og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Newton var valinn verðmætasti leikmaður NFL 2015 en lagði skóna á hilluna 2021. Lengst af ferilsins í NFL lék hann með Carolina Panthers.
NBA NFL Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira