Sakar Infantino um fjárkúgun Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. ágúst 2026 18:22 Infantino og Al Hussein voru báðir í framboði til forseta FIFA árið 2016. Matthias Hangst/Getty Images Ali Bin Al Hussein, prins og forseti knattspyrnusambands Jórdaníu, tekur Gianni Infantino, forseta FIFA, fyrir í langri ræðu sem hann ritar opinberlega. Hann segir FIFA eiga ógreiddar skuldir og sakar Infantino um fjárkúgun fyrir stuðning. „
Það er enginn skortur á vandamálum þegar kemur að FIFA“ byrjar Hussein í skrifum sínum þar sem hann rekur vandræði jórdanska landsliðsins og stuðningsmanna þess við að fá vegabréfaáritun við komuna til Bandaríkjanna. There is no shortage of issues regarding FIFA. Let me start by clarifying what some of these are from an FA perspective, in particular that of Jordan going into a World Cup for the first time. We are a small country with a minimal budget for our FA and had to deal with enormous…— Ali Al Hussein (@AliBinAlHussein) August 4, 2026 Hann gagnrýnir einnig hátt miðaverð á HM en Jórdanía tók þátt í fyrsta sinn í sumar. Aðallega kveðst Hussein ósáttur við að knattspyrnusamband Jórdaníu hafi ekki fengið verðlaunafé fyrir að komast í úrslit Arabíubikarsins í desember síðastliðnum. „Á sama tíma montar FIFA sig af milljörðunum sem það á inn í banka,“ skrifar Hussein. Hann segir forseta FIFA stunda fjárkúgun til að fá sínu framgengt. „Í marga mánuði hefur FIFA neitað að hjálpa okkur með þessi mál eða önnur. Svo var mér sagt á HM að ef ég myndi styðja Infantino opinberlega gæti það hjálpað við að slétta úr málum knattspyrnusambandsins. Við erum stolt af því í Jórdaníu að halda siðferðislegum gildum í heiðri. Við studdum hann ekki áður og munum svo sannarlega ekki gera það núna. Allt þetta mál jafngildir fjárkúgun og við neitum að láta undan henni,“ skrifar Hussein einnig. FIFA hefur ekki brugðist við fyrirspurnum Reuters um málið. Ásakanir um fjárkúgun á hendur Infantino koma í kjölfar mikilla vandræða hjá forsetanum, sem situr í sjóðheitu sæti eftir misheppnaða tilraun í síðustu viku til að hleypa utanaðkomandi fjárfestum að FIFA.
FIFA Jórdanía Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira