Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Jón Þór Stefánsson skrifar 5. ágúst 2026 14:47 Tómas og Ingibjörg taka við af Þórunni. Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir og Tómas J. Gestsson taka við af Þórunni Reynisdóttur sem, líkt og greint var frá í morgun, mun láta af störfum sem forstjóri Úrvals Útsýnar, eftir ellefu ára starf. Ingibjörg verður forstöðumaður Úrvals Útsýnar, en Tómas verður forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands.
Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir og Tómas J. Gestsson taka við af Þórunni Reynisdóttur sem, líkt og greint var frá í morgun, mun láta af störfum sem forstjóri Úrvals Útsýnar, eftir ellefu ára starf. Ingibjörg verður forstöðumaður Úrvals Útsýnar, en Tómas verður forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu. Ferðaskrifstofa Íslands er skipuleggjandi allra ferða sem seldar eru af Úrval Útsýn. Í tilkynningunni segir að Ingibjörg muni leiða starfsemi félagsins áfram með skýra áherslu á vöxt, öflugt vöruframboð og góða þjónustu við viðskiptavini. Ingibjörg ber ábyrgð á framleiðslu og sölu ferða á vegum vörumerkjanna Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða. Þá muni Tómas J. Gestsson gegna sínu starfi samhliða því að stýra Heimsferðum, en Tómas hefur verið við stjórnvölinn þar í rúm tuttugu ár. „Ferðaskrifstofa Íslands er eitt öflugasta fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi og býr að sterkum vörumerkjum, mikilli reynslu og öflugu starfsfólki. Fram undan eru spennandi tækifæri til að styrkja reksturinn enn frekar og þróa fjölbreytt framboð félagsins. Ég hlakka til að vinna með Ingibjörgu og starfsfólkinu að næsta kafla í sögu félagsins,“ er haft eftir Tómasi.„Það er mikil tilhlökkun að takast á við þetta verkefni. Vörumerki Ferðaskrifstofu Íslands eiga sér sterka stöðu og langa sögu. Við ætlum að byggja áfram á þeim grunni, efla vöruframboðið og sækja fram með þarfir og upplifun viðskiptavina að leiðarljósi,“ er haft eftir Ingibjörgu.
Vistaskipti Ferðaþjónusta Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira