Samningur í höfn hjá Vinicius Junior og Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 19:31 Viðræður Real Madrid og Vinicius Junior voru strandaðar en eftir fréttir af áhuga Arsenal voru menn frekar fljótir að ná saman. AP/Manu Fernandez Skriður komst á samningaviðræður Real Madrid og fulltrúa Vinícius Júnior á ný þegar spænska félagið lagði fram nýtt og endurbætt tilboð og nú er sex ára samningur í höfn samkvæmt helstu fótboltaskúbburum heims.
Vangaveltur um framtíð brasilíska landsliðsmannsins höfðu aukist undanfarnar vikur en núverandi samningur hans átti að renna út í júní 2027. David Ornstein og Fabrizio Romano staðfestu báðir að samningar séu nú í höfn og nýr samningur gildi til 2032 en þá verður Brasilíumaðurinn orðinn 32 ára gamall. 🚨 Real Madrid reach agreement with Vinicius Junior to sign new contract. #RMFC raised offer after 18 months of talks failed to produce breakthrough & now set to confirm extension. 26yo was open to #AFC move if no renewal. W/ @MarioCortegana @TheAthleticFC https://t.co/6zqrozWyEk— David Ornstein (@David_Ornstein) August 6, 2026 Arsenal hafði verið mikið nefnt sem hugsanlegur áfangastaður Brasilíumannsins en flestir voru á því að umboðsmaður Vinicius hefði notað Arsenal til að koma viðræðum Vinicius og Real Madrid aftur af stað. Það virðist líka hafa verið raunin. Fundur fór fram á miðvikudag þar sem framkvæmdastjóri Madrid, José Ángel Sánchez, yfirnjósnari félagsins, Juni Calafat, umboðsmaður Vinícius, Frederico Pena, og ráðgjafi leikmannsins, Tata Soares, voru viðstaddir. 🚨⚪️ Story confirmed: Vinicius Jr new six year contract at Real Madrid, set to be signed and announced soon. 🇧🇷Vini always wanted to stay at Real Madrid, Florentino Pérex always considered Vini as key part of the project.José Mourinho also heavily involved. 🔐 pic.twitter.com/i6konuq8Z5— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 6, 2026 ESPN sagði frá því að Real Madrid hefði boðið nýtt tilboð að andvirði um 22 milljóna evra á ári á þessum fundi eða meira en þriggja milljarða íslenskra króna en á miðvikudag hækkaði Real Madrid tilboð sitt aftur án þess að staðfesta nýjustu upphæðina. Á mánudag sneri Vinícius aftur til æfinga hjá Real Madrid eftir frí í kjölfar HM og nýr samningur verður væntanlega tilkynntur með viðhöfn á næstu dögum. Fyrri tilboð höfðu verið langt undir kröfum leikmannsins sem námu um 30 milljónum evra á ári eða 3,2 milljörðum króna. Vinícius þénar nú um 17,5 milljónir evra á ári og samningaviðræður um endurnýjun höfðu staðið í stað í marga mánuði fyrir fundinn á miðvikudag.
Enski boltinn Spænski boltinn Real Madrid CF Arsenal FC Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira