Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2026 12:31 Í þremur leikjum á EM U-16 ára er Berglind Katla Hlynsdóttir með 31,7 stig, 8,7 fráköst, 5,0 stoðsendingar, 5,0 stolna bolta og 3,0 varin skot að meðaltali. kkí Frammistaða Stjörnukonunnar ungu, Berglindar Kötlu Hlynsdóttur, í B-deild Evrópumóts kvenna U-16 í körfubolta hefur vakið verðskuldaða athygli. Hún er á toppnum í mörgum tölfræðiþáttum mótsins og er meðal annars langstigahæsti leikmaður þess.
Berglind og stöllur hennar í íslenska liðinu hafa unnið alla þrjá leiki sína á EM. Ísland mætir heimaliði Grikklands í úrslitaleik um sæti í A-deild Evrópumótsins í dag. Berglind hefur skorað 95 stig í leikjunum þremur á EM, eða 31,7 stig að meðaltali í leik. Hún er langstigahæst á mótinu en næst kemur Mille Boje Sorensen frá Danmörku með 19,7 stig. Sé litið til framlagsstiga í leik er Berglind líka langefst á blaði þar. Hún er með 32,0 framlagsstig að meðaltali í leik en Sorensen kemur þar á eftir með 21,7 framlagsstig. Rún Sveinbjörnsdóttir úr Val er þriðji framlagshæsti leikmaður EM með 18,3 framlagsstig í leik. Berglind er einnig stoðsendingahæst á EM með 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik en Rún, Stjörnukonan Eva Óladóttir og hin norska Mia Omland koma næstar með 4,0 stoðsendingar í leik. Berglind og stöllur hennar í íslenska liðinu eru aðeins einum sigri frá því að komast upp í A-deild Evrópumótsins.kkí Berglind er fimmta á listanum yfir flest fráköst að meðaltali í leik á EM (8,7). Eva Ingadóttir úr Haukum er í 3. sæti frákastalistans með níu fráköst að meðaltali í leik. Þá er Berglind með flest varin skot að meðaltali á EM (3,0 í leik) og næstflesta stolna bolta (5,0 í leik). Rún hefur stolið boltanum oftast á EM, eða sex sinnum að meðaltali í leik. Berglind hefur ekki setið auðum höndum í sumar en hún spilaði einnig með U-20 ára landsliðinu á í A-deild Evrópumótsins. Ísland endaði þar í 12. sæti. Berglind var sjötti stigahæsti leikmaður mótsins með 17,3 stig að meðaltali í leik. Hún tók einnig 3,7 fráköst, gaf 3,4 stoðsendingar og skilaði fimmtán framlagsstigum að meðaltali í leik þrátt fyrir að spila fjögur ár upp fyrir sig.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira