Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Birgir Olgeirsson skrifar 11. ágúst 2026 18:32 Amir Caspi, leiðangursstjóri verkefnisins. Lýður Vísindamenn á vegum geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, eru staddir hér á landi til að nýta almyrkvann á morgun með það að markmiði að rannsaka hvers vegna ysti lofthjúpur sólarinnar er margfalt heitari en yfirborð hennar. Fjórar myndavélar um borð í rannsóknarþotu NASA munu mynda kórónu sólarinnar úr fimmtán kílómetra hæð.
Myndavélarnar í nefi WB-57-þotunnar taka minnst 20 myndir á sekúndu, í sýnilegu og innrauðu ljósi. Í fimmtíu þúsund feta hæð verða þær fyrir ofan skýin og megnið af lofthjúpnum sem annars getur truflað mælingarnar. Frá jörðu verður lengst hægt að fylgjast með almyrkvanum í tvær mínútur og átján sekúndur. Með því að fljúga með skugga tunglsins lengir þotan þann tíma um rúmar 40 sekúndur, í tæpar þrjár mínútur samtals. Hvers vegna? Amir Caspi, leiðangursstjóri verkefnisins, segir almyrkva veita einstakt tækifæri til að skoða kórónuna. Ráðgátan sem Caspi vill rannsaka uppgötvaðist fyrir um hundrað árum. „Kórónan nær milljónum gráða á Celsíus og við skiljum enn ekki nákvæmlega hvernig orkan berst innan úr sólinni og út í kórónuna til að hita hana svona mikið.“ Til samanburðar er yfirborð sólarinnar um 5.500 gráðu heitt. Caspi segir mælingarnar geta sýnt hvernig orka ferðast um flókið segulsvið sólarinnar og hvernig plasma, eða jónað gas, verkar á það. Sama eðlisfræði komi við sögu í segulsviði jarðar, öðrum sólkerfum og jafnvel í kringum svarthol og nifteindastjörnur. „Við getum lært meira um það sem gerist um allan alheiminn með því að rannsaka stjörnuna sem er hér rétt hjá okkur.“ Örsprengingar eða bylgjur Tvær meginkenningar eru uppi um hvernig kórónan hitnar. „Önnur snýst um svonefnda nanóblossa, litlar sprengingar sem verða stöðugt og losa orku. Hin snýst um bylgjur sem ferðast um segulsvið sólarinnar, leysast þar upp og hita kórónuna.“ Caspi líkir bylgjukenningunni við örbylgjuofn. „Bylgjurnar skila orku inn í matinn og hita hann. Við teljum að eitthvað svipað kunni að gerast í segulsviði sólarinnar.“ Með myndunum úr þotunni vonast vísindamenn til að sjá hvor kenningin er ríkjandi í mismunandi hlutum kórónunnar og komast nær því að skilja hvernig orkan flyst. Caspi segist vona að ráðgátan verði að minnsta kosti að hluta leyst á okkar æviskeiði. Vísindin hafi þó þann eiginleika að hvert svar veki nýjar spurningar. „Ef við leystum allar ráðgátur alheimsins væri hann mjög leiðinlegur staður. En ég vona að við fáum mun meiri upplýsingar til að skilja hvernig sólin virkar og hvernig hún hefur áhrif á okkur hér á jörðinni.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bandaríkin Sólin Geimurinn Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira