Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 20:22 Sigríður Ólöf Sigurðardóttir og Salka Emilsdóttir voru líka staddar á höfuðborgarsvæðinu þegar almyrkvinn reið yfir, Anna Kristínn var með sonum sínum í Hlíðunum meðan á honum stóð. Vísir/Sigurjón Líklega hefur nær hvert mannsbarn á landinu horft til himins í gær þegar almyrkvi færðist yfir landið. Upplifunin fólks var þó afar misjöfn. Á meðan sumir urðu djúpt snortnir fannst öðrum sjónarspilið ekki standa undir væntingum.
Margir hafa lýst reynslu sinni af almyrkvanum í gær á samfélagsmiðlum og í fréttum. Flestir eru afar jákvæðir, einkum þeir sem sáu náttúrufyrirbrigðið berum augum en líka þeir sem voru staddir þar sem skýjað var eins og á höfuðborgarsvæðinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var stödd á Ægissíðunni í Reykjavík þegar almyrkvinn varð. „Mér fannst þetta alveg stórfenglegt augnablik. Ekki bara vegna sjálfs sólmyrkvans heldur vegna samverunnar á Ægissíðunni meðan á sólmyrkvanum stóð. Það að vera innan um allt þetta fólk sem í hljóðri andakt var að njóta þess saman að sjá þetta náttúruundur, það var það sem settist að í hjartanu á manni,“ segir Ingibjörg. Þessi létu fara vel um sig á meðan almyrkva stóð á Hellissandi í gær. Vísir/Berghildur Sigríður Ólöf Sigurðardóttir og Salka Emilsdóttir voru líka staddar á höfuðborgarsvæðinu þegar almyrkvinn reið yfir, „Mér fannst þetta ekkert svakalegt," segir Sigríður aðspurð út í myrkvann. Salka var á öðru máli. „Þó að það sæist ekki í sólina þá var þetta bara mjög flott,“ segir Salka. Vala Kristín Eiríksdóttir var stödd á Miklatúni þegar myrkvinn reið yfir. „Ég var vonsvikin með skýjaspána og hvernig veðrið var. En svo var þetta alveg magnað, að sjá hvað dimmdi hratt og hvað maður er lítill í þessum stóra heimi,“ segir Vala. Mæðginin Anna Kristín, Emmanúel og Garbríel nutu sólmyrkvans í Hlíðunum. „Þetta var stórmerkilegt en ég fann ekki þessa miklu hrifningu sem Stjörnu- Sævar var búinn að lýsa,“ segir Anna Kristín. Árni Ingólfsson upplifði myrkvann á Ægissíðunni og var hrifinn. „Ég upplifði þetta sem sameiningartákn, þarna væri loks eitthvað komið sem í öllum glundroðanum gæti sameinaði okkur,“ segir hann um almyrkvann.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Reykjavík Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Sjá meira