Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar 14. ágúst 2026 15:00 Ég ætla að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Ekki vegna þess að ég sé sannfærður um að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið eða trúi því að evran leysi allan okkar vanda. Ég hef efasemdir um margt í þessu sambandi. Ég ætla samt að segja já. Ástæðan er einföld: Ég vil vita hvaða samning Ísland getur fengið. Ég vil að við göngum til viðræðna af fullri alvöru, reynum að ná besta mögulega samningi og leggjum síðan niðurstöðuna fyrir þjóðina. Þá fyrst vitum við hvað við erum að segja já eða nei við. Það er mikilvægt að hafa í huga að 29. ágúst er ekki kosið um inngöngu Íslands í Evrópusambandið heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju. Ef samningur næst kemur aðildin sjálf aftur til þjóðarinnar. Ég get því vel sagt já núna og nei síðar ef samningurinn verður ekki nógu góður. Ég er kominn á þann aldur að ákvarðanir um stöðu Íslands í Evrópu næstu áratugina munu hafa meiri áhrif á börnin okkar og barnabörnin en á mig. Þess vegna finnst mér rangt að horfa eingöngu á það sem hentar minni kynslóð best. Brexit er þar áminning. Þegar Bretar kusu árið 2016 að yfirgefa ESB var kynslóðamunurinn sláandi. Samkvæmt YouGov kusu 64% þeirra sem voru 65 ára og eldri útgöngu en 71% kjósenda undir 25 ára aldri vildu vera áfram. Tíu árum síðar gerir breska fjárlagaskrifstofan enn ráð fyrir að Brexit muni til lengri tíma lækka framleiðni breska hagkerfisins um um 4%. Í könnun Ipsos í júní síðastliðnum vildu 52% Breta að Bretland sækti aftur um aðild að ESB. Það er því erfitt að horfa fram hjá því að kynslóð sem hafði skemmri tíma til að lifa með afleiðingum ákvörðunarinnar átti stóran þátt í að taka ákvörðun sem yngra fólk þarf að búa við áratugum saman. Ég er ekki að leggja til að skerða eigi kosningarétt fólks vegna aldurs. Almennur kosningaréttur er ein af undirstöðum lýðræðisins. En honum fylgir líka ábyrgð. Við eldri kjósendur eigum að geta horft lengra en til okkar sjálfra. Það er ein ástæða þess að ég segi já vegna annarra. Það eru líka aðrar ástæður. Heimurinn er að færast inn í tímabil harðnandi samkeppni stórveldanna og þar vegur lítið ríki eins og Ísland létt eitt og sér. Með aðild yrðum við hluti af tollabandalagi ESB og sameiginlegri viðskiptastefnu þess. Gagnvart Bandaríkjunum og Kína tel ég meiri styrk felast í því að semja sem hluti af markaði hundruða milljóna manna en sem 400 þúsund manna þjóð. Vissulega færðist hluti sjálfstæðrar viðskiptastefnu okkar til sambandsins, en á móti kæmi samningsstyrkur sem Ísland getur aldrei haft eitt og sér. Sama gildir að mínu mati um öryggismál. NATO er og verður hornsteinn varna Íslands og ESB kemur ekki í stað Atlantshafsbandalagsins. En aðild að ESB myndi bæta öðru lagi við pólitískt, efnahagslegt og öryggislegt bakland okkar. Í sáttmála ESB er gagnkvæm varnarskylda: verði aðildarríki fyrir vopnaðri árás ber öðrum aðildarríkjum að veita því aðstoð og stuðning með þeim ráðum sem þau hafa yfir að ráða. NATO yrði eftir sem áður meginstoð hervarna Íslands. Fyrir litla og herlausa þjóð tel ég þessa viðbótartryggingu ótvíræðan kost þegar horft er til þeirrar óvissu sem ríkir í Evrópu og á Norður-Atlantshafi. En já mitt er ekki skilyrðislaust. Ísland gengur ekki til viðræðna sem fátækt ríki í leit að björgun. Við stöndum efnahagslega mjög sterkt. Landsframleiðsla á mann, leiðrétt fyrir verðlagi, var árið 2025 um 28% yfir meðaltali ESB og raunveruleg einstaklingsneysla um 15% yfir meðaltalinu. Við erum auðug þjóð með verðmætar náttúruauðlindir, menntað vinnuafl, endurnýjanlega orku og ein gjöfulustu fiskimið heims. Við eigum því ekki að ganga inn í viðræðurnar með húfuna í hendinni. Við eigum að semja af hörku. Þar er eitt mál sem fyrir mér er algjört grundvallaratriði: yfirráð okkar yfir náttúruauðlindunum og sérstaklega fiskveiðiauðlindinni. Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB felur í sér að varðveisla lífrænna auðlinda sjávar er á valdsviði sambandsins. Fyrir þjóð sem háði þorskastríðin og byggði stóran hluta efnahagslegs sjálfstæðis síns á 200 mílna fiskveiðilögsögunni er þetta ekkert smámál. Ég vil ekki sjá Ísland afsala sér endanlegu ákvörðunarvaldi yfir þessari auðlind. Þetta á að vera eitt af okkar skýrustu samningsmarkmiðum. Við eigum að sjá hversu langt ESB er tilbúið að ganga til móts við íslenska hagsmuni. Ef niðurstaðan verður sú að við þurfum að fórna of miklu, þá segjum við einfaldlega nei þegar samningurinn kemur fyrir þjóðina. En til þess að geta hafnað slæmum samningi verðum við fyrst að vita hvernig samning við getum fengið. Að segja nei 29. ágúst þýðir að við ákveðum niðurstöðuna áður en við vitum hvað stendur okkur til boða. Að segja já þýðir ekki að við samþykkjum aðild. Það þýðir að við viljum kanna möguleikana og taka síðan endanlega ákvörðun með staðreyndir á borðinu. Ég veit ekki í dag hvernig ég myndi kjósa um fullgerðan aðildarsamning Íslands og ESB. Það færi eftir því hvað í honum stæði. En 29. ágúst segi ég já. Ekki vegna þess að ég trúi að ESB leysi öll okkar vandamál, heldur vegna þess að komandi kynslóðir eiga rétt á því að við könnum alla valkosti þeirra áður en við lokum einhverjum þeirra. Já, vegna allra. Höfundur er landfræðingur og með MBA-gráðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar