Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 18:23 Stjörnustrákarnir Kormákur Nói Jack og Baltasar Torfi Hlynsson skoruðu 34 stig saman í kvöld og hér hjálpa þeir Haukamanninum Sindra Logasyni á fætur. FIBA Basketball Íslenska sextán ára landsliðið í körfubolta tryggði sér sæti í úrslitaleik B-deildar Evrópukeppninnar í kvöld og um leið sæti í A-deildinni á næsta ári.
Íslenska liðið vann sannfærandi 44 stiga sigur á Bosníu í undanúrslitaleiknum í kvöld, 95-51, eftir að hafa verið 47-30 yfir í hálfleik. Íslensku strákarnir tóku öll völd snemma í leiknum og voru komnir fjórtán stigum yfir, 29-15, eftir fyrsta leikhluta. Eftir þessa frábæru byrjun var ljóst í hvað stefndi en okkar strákar gáfu ekkert eftir og hreinlega keyrðu yfir Bosníumenn sem áttu engin svör. Þrjár efstu þjóðirnar tryggja sig upp í A-deildina og farseðillinn þangað er því í höfn með sæti í úrslitaleiknum. Íslensku strákarnir hlusta hér á þjóðsönginn fyrir undanúrslitaleikinn í kvöld.FIBA Basketball Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson og Keflvíkingurinn Davíð Breki Antonsson voru nálægt þrennu. Atli Freyr var með 16 stig, 8 fráköst og 7 stoðsendingar en Davíð Breki með 11 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar. Stjörnustrákarnir Kormákur Nói Jack og Jón Breki Sigurðarson voru mjög öflugir undir körfunum í kvöld. Kormákur var með 20 stig og 10 fráköst en Jón Breki skoraði 9 stig, tók 12 fráköst og varði 3 skot. Stjörnustrákurinn Baltasar Torfi Hlynsson skoraði 14 stig, Keflvíkingurinn Arnar Freyr Elvarsson skoraði 9 stig og Sindramaðurinn Hlynur Ingi Finnsson var með 6 stig. Íslensku strákarnir hafa unnið sex af sjö leikjum sínum á mótinu en þeir hafa komið á móti öflugum þjóðum eins og Úkraínu, Norður-Makedóníu, Sviss, Kýpur og Svartfjallalandi. Íslenska liðið vann báða leiki sína í útsláttarkeppninni með sannfærandi hætti því Svartfellinga unnu strákarnir með 22 stiga mun í átta liða úrslitunum. Króatía og Eistland mætast í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld en það þarf eitthvað mjög óvænt að gerast ef íslensku strákarnir mæta ekki hinu gríðarlega sterka króatíska liði í úrslitaleiknum á morgun.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira