The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 09:03 Kanadíski tónlistarmaðurinn The Weeknd heldur fimm tónleika á sex dögum á Wembley-leikvanginum. Getty/Axelle/Bauer-Griffin Leikurinn um Samfélagsskjöldinn fer vanalega fram á Wembley-leikvanginum í London en svo verður ekki raunin í dag.
Opnunarleikur keppnistímabilsins í enska fótboltanum að margra mati fer fram í dag þegar Englandsmeistararnir og bikarmeistararnir mætast í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Leikurinn verður spilaður á Millennium Stadium í Cardiff í Wales. Arsenal vann í vor sinn fyrsta meistaratitil í 21 ár og mætir því í leikinn í dag sem Englandsmeistari en mótherjinn er Manchester City sem hefur unnið Englandsmeistaratitilinn sex sinnum á síðustu níu tímabilum. City vann enska bikarinn eftir sigur á Chelsea í úrslitaleiknum í vor og mætir í leikinn sem bikarmeistari. En af hverju er ekki spilað á Wembley-leikvanginum? Þetta er aðeins í þriðja sinn frá 2007, þegar nýr Wembley-leikvangur var tekinn í notkun, sem leikurinn um Samfélagsskjöldinn fer ekki fram þar. Leikurinn 2022 var spilaður á King Power-leikvanginum í Leicester vegna þess að úrslitaleikur Evrópumóts kvenna var spilaður á Wembley á þessum tíma. Leikurinn 2012 var síðan spilaður á Villa Park í Birmingham þar sem fótboltamót Ólympíuleikanna í London fór fram á sama tíma. Það er þó ekki fótbolti eða önnur íþrótt sem heldur Samfélagsskildinum frá Wembley-leikvanginum í dag. Leikurinn fer fram í Cardiff en ekki London þar sem Wembley-leikvangurinn hýsir tónleika The Weeknd á After Hours til Dawn-tónleikaferðalaginu hans. Kanadíski tónlistarmaðurinn The Weeknd er gríðarlega vinsæll og hann heldur fimm tónleika á leikvanginum frá 14. ágúst til 19. ágúst eða fimm tónleika á sex kvöldum. Sá fyrsti fór fram í gær og það eru aðrir tónleikar í dag. View this post on Instagram A post shared by Daily Mail Sport (@dailymailsport)
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Mest lesið Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira