Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar 20. ágúst 2026 16:48 Erlend löggjöf hefur allt frá árinu 1760 haft afgerandi áhrif á lyfjamál á Íslandi. Í fyrstu giltu hér tilskipanir og reglugerðir Danakonungs og dönsk lyfjalöggjöf. Eftir að Ísland öðlaðist sjálfstæði frá Danmörku var áfram tekið mið af danskri löggjöf við setningu íslenskra lyfjalaga. Síðustu rúm 30 ár hefur íslensk lyfjalöggjöf hins vegar tekið mið af tilskipunum og reglum Evrópusambandsins. Þær ná til nánast allra sviða lyfjamála, að undanskildu rekstrarfyrirkomulagi apóteka og lyfjadreifingar, sem hvert aðildarríki EES ákveður sjálft. Ljóst er að regluverk ESB hefur tryggt gæði og öryggi lyfja og skipt sköpum fyrir þróun lyfjamála hér á landi. Innleiðing þess hefur jafnframt gert íslenskum lyfjaframleiðendum kleift að uppfylla alþjóðlegar gæðakröfur og starfa á erlendum mörkuðum. Vegna EES-samningsins hefur Ísland getað fylgst með mótun tilskipana og reglugerða ESB með þátttöku áheyrnarfulltrúa. Okkur ber síðan að innleiða reglurnar í íslenska löggjöf. Við tökum því við reglum sem að okkur er beint án þess að hafa formleg áhrif á endanlega niðurstöðu. Þar munar um að hafa aðeins áheyrnarfulltrúa en ekki sæti við borðið. Ísland hefur oft reynt að hafa áhrif á reglur sem falla illa að litlum lyfjamarkaði og valda hlutfallslega meiri kostnaði hér en á stærri mörkuðum. Á okkur hefur vissulega verið hlustað og jafnvel hafa verið skipaðir vinnuhópar til að leita lausna, en án viðunandi árangurs. Telja verður mun líklegra að slíkar lausnir næðust fram ef Ísland væri fullgildur aðili að ESB. Í fyrri aðildarviðræðum við ESB setti heilbrigðisráðuneytið fram samningsmarkmið sem tóku mið af sérstöðu Íslands sem lítils lyfjamarkaðar. Markmiðið var að finna leiðir til að auka lyfjaúrval, sérstaklega framboð ódýrra samheitalyfja, og lækka þannig lyfjakostnað í landinu. Ástæðan var - og er enn - sá vandi sem stafar af takmörkuðu lyfjaúrvali hér á landi, einkum skorti á ódýrum samheitalyfjum. Afleiðingin er hærri lyfjakostnaður en á stærri mörkuðum í Evrópu. Hér á landi eru tæplega 3.000 lyf með markaðsleyfi, samanborið við um 10.000 á hinum Norðurlöndunum. Takmarkað framboð hefur meðal annars birst í tíðum lyfjaskorti, lítilli samkeppni og háu lyfjaverði. Vegna lyfjaskorts hefur þurft að flytja inn mun meira af undanþágulyfjum en tíðkast í öðrum Evrópulöndum, með ærnum tilkostnaði fyrir heilbrigðiskerfið og sjúklinga. Meðal lausna sem ræddar voru í aðildarviðræðunum var þátttaka Íslands í stærri lyfjamarkaði, til dæmis þeim danska, með svipuðum hætti og Færeyjar og Grænland. Þar er aðgengi að ódýrum samheitalyfjum betra, samkeppni meiri og lyfjaverð lægra en hér á landi. Einnig var rætt um aðgang Íslands að sameiginlegum lyfjaútboðum ESB og notkun rafrænna fylgiseðla. Rafrænir fylgiseðlar gætu dregið verulega úr kostnaði við sérstakar umbúðir og umpökkun lyfja fyrir hinn litla íslenska markað. Ég hef trú á því að kjósi þjóðin já 29. ágúst verði unnt að taka upp þráðinn frá fyrri viðræðum. Þær gætu leitt til meira lyfjaúrvals, minni lyfjaskorts, aukinnar samkeppni og lægra lyfjaverðs hér á landi. Höfundur er fyrverandi lyfjamálastjóri heilbrigðisráðuneytisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar