Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar 22. október 2026 12:47 Þekkt er rannsókn vísindamanna við Hebreska háskólann í Jerúsalem, þar sem þátttakendur voru beðnir um að meta hversu hátt hlutfall fólks á myndum var hvítt og hversu hátt hlutfall þess var dökkt á hörund. Bandarískum þátttakendum voru sýndar mósaík-myndir með andlitum 100 einstaklinga. Hver þátttakandi sá 20 slíkar myndasamsetningar, hverja í tvær sekúndur, og átti svo að meta hlutföllin á hverri mynd fyrir sig. Þegar dökkt fólk var 25 prósent andlitanna mátu hvítir þátttakendur hlutfallið 43 prósent. Þegar hlutfall dökkra andlita var 45 prósent töldu hvítir þátttakendur það nær 59 prósentum. Þegar hlutfall dökkra var aðeins fimm prósent upplifðu hvítu þátttakendurnir að það væri 15% - þrefalt hærra en það var í raun. Tilgáta rannsakenda var sú að við tökum frekar eftir því sem við erum óvön að sjá og ofmetum umfang þess í umhverfinu. Í þessu tilfelli voru þátttakendur ekki endilega vanir því að sjá hátt hlutfall dökkra einstaklinga á myndum (sjónvarpsþáttum, kvikmyndum eða ljósmyndum), tóku því frekar eftir þeim og ofmátu fjölda þeirra á mósaík-myndunum. Dökkum mönnum bregður fyrir á mynd Nú keppast ómerkilegustu stjórnmála- og fjölmiðlamenn landsins við að telja okkur trú um að múslimar og brúnt fólk beri höfuðábyrgð á þeim óeirðum sem brutust út í nokkrum evrópskum borgum síðustu helgi - og setja þær í samhengi við „stjórnlausa“ fjölgun þeirra. Þeir dreifa myndum af brúnum mönnum sem tengjast óeirðunum jafnvel ekki með nokkrum hætti. Hafa ekkert gert af sér annað en að vera dökkir á hörund og að hafa slysast inn á ljósmynd í slagtogi við aðra dökka menn. Þeim sem dreifa þessum myndum er alveg sama hvaðan þær koma því þeir vita að mynd af hópi brúnna karlmanna, sett í neikvætt samhengi, getur dugað til að skapa ótta og óöryggi meðal stórs hluta kjósenda. Óttinn skilar atkvæðum. En tók einhver eftir hvítu mönnunum tveimur á myndinni sem bæjarstjóri Ölfuss deildi í vikunni? Sjálfur tók ég ekki eftir þeim fyrr en einhver benti á þá - það sem heilinn minn sá á myndinni var hópur dökkra manna. Það er nefnilega enginn ónæmur fyrir þessu sálfræðilega fyrirbæri - þessari hugrænu slagsíðu - sem rannsakendur við Hebreska háskólann könnuðu í rannsókn sinni. Verum meðvituð um slagsíðuna Í tengslum við óeirðirnar tala margir eins og múslimar séu að „taka yfir“ Evrópu. Að hingað streymi „ótakmarkaður fjöldi“ þessa fólks. Þegar við heyrum slíka orðræðu, þegar við sjáum myndir af grímuklæddum óeirðarseggjum, og þegar okkur líður sjálfum eins og innflytjendur spretti hér upp eins og gorkúlur, þá getur verið hollt að hugsa til rannsóknarinnar við Hebreska háskólann í Jerúsalem. Og minna sig á að innflytjendur frá svæðum þar sem múslimar eru í meirihluta eru aðeins 1,6% af íbúafjölda Íslands. PS: Þetta kemur kannski einhverjum á óvart en ekki allir Frakkar eru hvítir. Fimmtungur frönsku þjóðarinnar er dökkur á hörund og stór hluti þeirra getur rakið ættir sínar innan landamæra Frakklands til margra kynslóða. Það er því ekki óeðlilegt að sjá dökku fólki bregða fyrir á myndum frá mótmælum í höfuðborginni París. Þau mótmæla og fara á ströndina og fá sér kaffi og taka pláss í almannarýminu eins og aðrir. Þau eru einfaldlega hluti af þjóðinni. Höfundur er félagsmálafulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar