Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 21. ágúst 2026 16:27 Vilborg Ása Guðjónsdóttir er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Vísir „Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins.
Vilborg Ása er gestur dagsins í Vísi að viðræðum, þar sem Evrópumálin og komandi atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður eru krufin til mergjar. Vilborg var ráðgjafi í alþjóðadeild Alþingis á árunum 2012-2018 og var starfsnemi hjá Evrópuþinginu 2010-2011. Kastljós erlendra fjölmiðla hefur beinst að atkvæðagreiðslunni síðustu vikur en Vilborg segir algengan misskilning meðal útlensku pressunnar að hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseti meginástæða þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Enda stóð til að halda atkvæðagreiðsluna áður en Trump gaf út hótanir sína í garð Grænlendinga. Vilborg telur þó að öryggis- og varnarmál hafi fengið óvenjulitla athygli í umræðunni. Hún segir það hafa verið óhugsandi í viðræðunum 2009 til 2013 að aðild Íslands að sambandinu gæti veikt samskipti Íslands við Bandaríkin, en nú séu önnur teikn á lofti miðað við sviptingar í alþjóðakerfinu. Full yfirráð í framkvæmd Í viðtalinu erfer Vilborg um víðan völl og ræðir einnig sjávarútvegsmálin. Hún telur útilokað að fá varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins í heild. „Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð.“ Aðspurð um mögulega útfærslu í viðræðum til að tryggja yfirráð yfir auðlindinni telur hún að raunhæfasta leiðin væri að tryggja Íslandi sem mest áhrif eða jafnvel forystu innan samninganefndarinnar. „Mögulega væri hægt að leggja fram smáríkjakortið, og sérstöðuna, og fjarlægðina og svo framvegis. Ég meina; Malta hefur fengið einhverjar undanþágur í sjávarútvegi til dæmis en þetta er ekki alveg skýrt.“ Hún tekur samt fram að hún þekki ekki nákvæm lagaleg atriði enda hvorki lögfræðingur né sjávarútvegssérfræðingur. Sömuleiðis sé hæpið að fá undanþágu frá reglum um frjálsar fjárfestingar, en Ísland sé nú þegar með undanþágu í EES hvað það varðar. Markmiðið gæti frekar verið að tryggja að reksturinn haldist í landi, t.d. með búsetuskilyrðum fyrir fjárfesta, en hún bendir á að Bretar hafi tapað sambærilegu máli fyrir Evrópudómstólnum gagnvart Spánverjum, svo óvíst sé hvort slíkt standist. Aðlögunarviðræður með minni aðlögun Hún útskýrir að formlega séu aðildarviðræður við Evrópusambandið eins konar „aðlögunarviðræður“ en setur þann fyrirvara að Ísland sé sem EES-ríki þegar verulega aðlagað Evrópuregluverki. Ísland væri að mörgu leyti í annarri stöðu en önnur umsóknarríki enda hafi landið virkt lýðræði og réttarríki og virði grundvallarmannréttindi, sem önnur umsóknarríki geta ekki öll státað sig af. Það séu þau atriði sem aðlögun snúi alla jafna að. Hún segir að í síðustu viðræðum hafi íslensk stjórnvöld samið við ESB um að nægjanlegt væri að leggja fram áætlanir um hvernig aðlögun yrði háttað, aðallega í landbúnaði og byggðamálum, en samþykkt að þem yrði ekki breytt fyrr en þjóðin hefði samþykkt aðild. Vilborg snertir einnig á innanlandspólitík, landbúnaðarmálum og mörgu fleiru. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að ofan og á öllum helstu streymisveitum.
Vísir að viðræðum Hlaðvarp Vísis Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Sjávarútvegur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla ein án fasts nefndarsætis eftir Framsóknarkapal Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Sjá meira