EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson skrifar 20. ágúst 2026 22:13 Íslenskir stjórnmálaflokkar skipta flestir um skoðun í utanríkis- og alþjóðlegum viðskiptamálum eftir því hvort þeir eru í ríkissstjórn eða stjórnarandstöðu. Þetta var greinilegt í afgreiðslu EES- samninganna fyrir rúmum 30 árum og svo er enn í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið. Raunar sagði sá hreinskilni stjórnmálaleiðtogi Steingrímur Hermannsson í 3. bindi ævisögu sinnar: „Það eru mín stærstu pólitísku mistök að hafa greitt atkvæði gegn EES-samningnum“, eftir að hafa stutt dyggilega að gerð hans meðan hann leiddi ríkisstjórn. UMPÓLUN Í VIÐHORFUM Starfsbróðir Steingríms, Kjell Magne Bondevik, var í tvígang forsætisráðherra í Noregi, og einn af forystumönnum Nei-hreyfingarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslum um aðildarsamning að ESB 1972 og 1994 þar sem Nei sigraði í bæði skiptin. Hann hefur sagt frá því að Göran Persson, forsætisráðherra í Svíþjóð, hafi ætíð spurt hann þegar þeir hittust: „Hvenær gengur Noregur í Evrópusambandið?“. Bondevik segist hafa svarað í gamni og alvöru: “Það verður þegar Svíþjóð hefur gengið í NATÓ.“ Og það gerðist á undraskömmum tíma að áratuga fastar skoðanaskorður umpóluðust í Finnlandi og Svíþjóð eftir innrás Rússlands í Úkraínu 24. febrúar 2022, landvinningastefnu Pútíns og fjölþáttaógnir í garð ýmissa Evrópuríkja. Nánast á einni nóttu ákváðu Finnar og Svíar að ganga í NATÓ. Strax 4. apríl 2023 varð Finnland 31. aðildarríki NATÓ og ári síðar, 7. mars 2024, gerðist Svíþjóð 32. aðildarríki varnarbandalagsins. Þar með sameinuðust öll norrænu ríkin um varnarmál sín innan NATÓ. Áðurnefndur Bondevik hefur einnig breytt um skoðun og telur nú að Noregur eigi að efna til þjóðaratkvæðgreiðslu um samningaviðræður við ESB líkt og Íslendingar í ljósi breytinga í alþjóðamálum. Og nauðsyn þess að byggja á samstarfinu innan Evrópusambandsins til frambúðar hefur aldrei verið ljósara almenningi í Svíþjóð og Finnlandi en nú , m.a. vegna þess að geðþóttatollar og verndarstefna í milliríkjaviðskiptum hafa komið til skjalanna að nýju. Hið sama gildir í Danmörku þar sem auk þess er glímt við landakröfur Trumps Bandaríkjaforseta sem eru í takt við vaxandi virðingarleysi stórvelda fyrir viðurkenndum landamærum. EES-SAMNINGURINN HELDUR EKKI VELLI Raunsæji Bjørns Gimmings, formanns norsku bændasamtakanna, Norges Bondelag, er eftirtektarvert í þessu samhengi. Hann sagði á fundi íslensku systursamtakanna á Hótel Nordica 13. ágúst sl. að norsku samtökin undirbyggju sig nú fyrir það að ESB-aðild kæmist á ný í brennidepil í norskum stjórnmálum. Hann segir norska bændur áfram eindregið andvíga inngöngu Noregs í Evrópusambandið en Norðmenn séu ekki einfaldir: „Landslagið getur breyst hratt í alþjóðamálum og nauðsynlegt er að vera tilbúinn til viðræðna.“ Og öryggismálin gætu vissulega trompað aðra hagsmuni enda taka Norðmenn þau alvarlega. Gimmings gerir því skóna eins og fleiri að strax eftir kosningar til sveitarstjórna á næsta ári hefjist Evrópuumræðan fyrir alvöru í Noregi. Hér á Íslandi ganga margir út frá því sem vísu að EES samningurinn muni verða líflína okkar inn á Evrópska efnahagssvæðið til frambúðar eins og verið hefur um þriggja áratuga skeið. En Norðmenn borga EES- brúsann að mestu leyti eins og kunnugt er og þar í landi verður vart æ meiri efasemda um framtíðargildi samningsins. „EES-samningurinn mun ekki, að mínu mati, halda velli til lengri tíma. Það tel ég nánast óháð því hvað Ísland gerir,“ sagði Ine Eriksen Söreide, nýr formaður Hægri flokksins í Noregi og fyrrverandi utanríkisráðherra í viðtali við RÚV eftir Arendalsviku norskra stjórnmálaflokka í sumar. Þrátt fyrir EES- samninginn fengu Norðmenn og Íslendingar ekki undanþágu frá verndartollum Evrópusambandsins sem settir voru á í kjölfar hárra tolla Bandaríkjaforseta á ál og stál frá Evrópu. Þetta varð til þess að vekjaraklukkan hringdi í Noregi og í kjölfarið lét t.d. Norsk industri gera skýrslu um möguleikann á að víkka út EES-samninginn þannig að hann næði einnig til tollabandalags við ESB. Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, sagði í viðtali við RÚV í vor, að sífellt erfiðara væri að starfa eftir EES-samningnum. „ Breytt heimsmynd hefði orðið til þess að Evrópusambandið væri sífellt meira að hugsa um eigin hagsmuni og þá yrðu hagsmunir EES-ríkjanna ekki í forgrunni.“ HÆTTULEG KENNING NÚ SEM ÞÁ Við þessar aðstæður sýnist það vera raunsætt að kanna kosti Íslands í viðræðum við ESB um mögulegan aðildarsamning og tryggingu fyrir frjálsum viðskiptum á okkar mikilvægasta og nærtækasta efnahagssvæði. Íslendingar eiga að vera óhræddir við að ganga til hverskyns viðræðna við önnur ríki og láta á það reyna að ná fram þeim meginhagsmunum sem flestir Íslendingar eru sammála um að setja á oddinn. Þessari afstöðu, sem telja má klassíska, lýsti Ólafur Ragnar Grímsson og Alþýðubandalagið við afgreiðslu EES-samningsins á Alþingi 1993. Orðrétt sagði hann ennfremur: „Það er hins vegar misskilningur, sem því miður kemur fram hjá sumum, að stuðningur við það að í slíkar viðræður sé farið eigi óhjákvæmilega að fela í sér að menn játi niðurstöðu samninganna. Það er hættulegt að setja fram þá kenningu að vilji til samninga eigi ávallt að fela í sér samþykki á niðurstöðum. Íslendingar eiga auðvitað að vera óhræddir við að taka þátt í fjölmörgum alþjóðlegum samningum en við verðum jafnframt að gæta vel að því að meta á sjálfstæðan hátt þá niðurstöðu sem liggur fyrir í lok viðræðna.“ Mér sýnist að þessi orð geti átt við í dag og hæfi vel framgöngu þeirrra sem semja við sjálfa sig um vondan samning. Og þeim sem telja að það felist skuldbinding um að játa slíkri niðurstöðu í því að hefja viðræður um aðildarsamning við Evrópusambandið. Þeir aðhyllast „hættulega kenningu“ nú sem þá. Höfundur var framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins árið 1993 þegar EES-samningurinn var samþykktur á Alþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar