Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson skrifar 20. ágúst 2026 22:29 Langflestir íbúar ESB-ríkjanna telja að lönd þeirra hafi notið góðs á aðildinni. Fyrir aðildarríkin í heild var hlutfallið 72%. Hjá Írum var það 93%, hjá Litháum og Portúgölum 92% og hjá Möltubúum og Lúxemborgurum 91%. Niðurstaðan er afgerandi og smáþjóðirnar virðast una hag sínum sérlega vel. Hún virðist jafnvel sýna að aðild auki áhrif þeirra og styrki fullveldið. Þannig hefur niðurstaða úr nýjustu könnun Eurobarometer verið borin á borð fyrir Íslendinga, þar á meðal af Evrópuhreyfingunni sem hefur notast við 72% töluna. Þetta virðist segja sína sögu. Svo virðist sem Evrópusambandið njóti mikils stuðnings meðal þeirra sem þekkja það af eigin raun. En um hvað voru þessi 72% spurð? Í spurningu QA9 í Standard Eurobarometer 105 var spurt, í íslenskri þýðingu: Þegar allt er tekið með í reikninginn, myndir þú segja að (LANDIÐ OKKAR) hafi á heildina litið notið góðs af aðild að Evrópusambandinu eða ekki?Taking everything into account, would you say that (OUR COUNTRY) has on balance benefited or not from being a member of the EU? Alls völdu 72% „notið góðs af“, 23% „ekki notið góðs af“ og 5% „veit ekki“. Ekki var spurt um stuðning við Evrópusambandið eða ánægju með aðildina. Þaðan af síður var spurt um áhrif smáríkja eða fullveldi þeirra. Spurningin snerist aðeins um það hvort svarandinn teldi land sitt hafa notið góðs af á aðildinni eða ekki. En hvað merkir það? Hversu mikill þurfti ávinningurinn að vera? Dugði örlítill ávinningur til að svara játandi? Og hverjir höfðu notið góðs af? Fólk getur talið land sitt hafa gert það þótt það telji ávinninginn hafa fallið öðrum í skaut en kostnaðinn á sig. Spurningin mælir aðeins almennt mat á því hvort landið hafi í heild notið góðs af aðild. Sá sem taldi aðildina hafa haft bæði mikla kosti og mikla galla gat ekki sagt það. Sá sem taldi hana hafa litlu breytt gat ekki gefið það til kynna heldur. Ekki var heldur boðið upp á samsvarandi neikvæðan kost. En Í spurningu QA8 í sömu könnun var spurt hliðstæðrar spurningar hvort aðild landsins að ESB væri almennt góð, slæm eða hvorki góð né slæm. Þar sögðu 58% að hún væri góð, 12% að hún væri slæm og 29% völdu „hvorki góð né slæm“. Nær þriðjungur svarenda valdi hlutlausan kost þegar hann stóð til boða. Í spurningunni sem 72% talan er sótt í var enginn slíkur kostur. Gagnrýni á spurningu Eurobarometer er ekki ný. Þýski fræðimaðurinn Hans Herbert von Arnim fjallaði um spurninguna árið 2006 og taldi Eurobarometer draga upp fegraða mynd af afstöðu almennings til Evrópusambandsins. Fræðimennirnir Martin Höpner og Bojan Jurczyk tóku hana síðar fyrir í sinni rannsókn “How the Eurobarometer Blurs the Line between Research and Propaganda”. Samanburðurinn sannar ekki að mismunandi svarmöguleikar hafi einir valdið mismuninum. Hann bendir þó skýrt til þess að blönduð og hlutlaus afstaða hafi verið útbreidd. Í könnun Forschungsgruppe Wahlen frá 2006 völdu 46% svarenda „bæði kosti og galla“. Í spurningu QA8 í Eurobarometer 105 völdu 29% „hvorki góð né slæm“. Hvorugur þessara svarmöguleika var í boði í QA9, spurningunni sem 72% talan er sótt í. Með þetta í huga er fróðlegt að sjá hvernig talan hefur verið kynnt. Í grein Páls Rafnars Þorsteinssonar, stjórnarmanns hjá Evrópuhreyfingunni, var hún kölluð „afgerandi niðurstaða“ og „merkilegur vitnisburður“. Hátt hlutfall í smærri ríkjum taldi Páll benda til þess að þau hefðu áhrif innan sambandsins og að aðild styrkti fullveldi þeirra. Í grein Þorvaldar Gylfasonar var niðurstaðan túlkuð svo að öll 27 aðildarlöndin „uni sér vel“ í ESB. DV kallaði síðan ríkin með hæstu hlutföllin þau „ánægðustu“ með veruna í ESB. Á sama tíma hafa áberandi talsmenn já-sinna gert baráttuna gegn upplýsingaóreiðu að sínu máli. Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, skrifaði á Vísi að upplýsingaóreiða væri herbragð sem andstæðingar aðildar beittu óspart. Utanríkisráðherra hefur sakað andstæðinga viðræðna um að leita í handbók Farage og Reform og dreifa falsupplýsingum. Netvís, sem heyrir undir Fjölmiðlanefnd, nefnir það beinlínis sem dæmi um upplýsingaóreiðu að „setja tölur eða gögn fram á þann hátt að þau gefi ranga eða villandi mynd af raunveruleikanum“. Á þann mælikvarða verður líka að skoða 72 prósentin. Er sanngjarnt að láta svar um óskilgreindan ávinning jafngilda því að langflestir uni sér vel í sambandinu? Er engin upplýsingaóreiða þar?Í sömu könnun, Eurobarometer 105, kom líka fram að aðeins 51% treysti ESB og aðeins 32% telja sambandið á réttri leið. Höfundur er sósíalisti og hönnuður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar