Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar 27. ágúst 2026 07:00 Frá því að Ísland fékk fullveldi árið 1918 hefur fáum, ef einhverjum, þjóðríkjum í heiminum gengið jafn vel að auka lífsgæði þegna sinna. Við höfum farið frá því að vera á meðal fátækustu ríkja heims í að vera á meðal þeirra ríkustu. Úr torfkofum í miklar álnir. Þessum árangri höfum við náð þrátt fyrir að vera harðbýl og fámenn eyja fjarri helstu meginlöndum sem hefur í ofanálag þurft að takast reglulega á við náttúruvá. Stór hluti af þessum árangri hefur náðst vegna þess að við höfum nýtt fullveldið til samstarfs á alþjóðavettvangi. Við gerðumst stofnaðilar að NATO, gerðum tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin, gengum í EFTA og gerðum svo auðvitað EES-samninginn á tíunda áratug síðustu aldar. Öll þessi skref hafa falið í sér að við höfum gefið frá okkur algjör og tæmandi yfirráð yfir öllum þáttum tilverunnar. Að við deilum ákvörðunartöku með vinaþjóðum með heildarhagsmuni að leiðarljósi. Óumdeilt er að ekkert þessara skrefa í alþjóðasamvinnu hefur veikt Ísland. Þvert á móti höfum við styrkst, eflst og hagnast á þeim öllum, stundum á fleiri sviðum en einu. Einstakur gluggi til að semja Það er vert að horfa til þeirrar sögu þegar við veltum fyrir okkur endurupptöku viðræðna um að ganga í Evrópusambandið, sem greidd verða atkvæði um á laugardag. Hún á að fylla okkur af trú um að í slíkar viðræður verði farið af miklu sjálfstrausti og metnaði og að enginn samningur verði samþykktur nema augljóst sé að hann styrki Ísland enn frekar. Samningsmarkmiðin svokölluðu, rauðu línurnar, liggja þegar skýrt fyrir: Við munum ekki geta gengið í Evrópusambandið nema yfirráð yfir auðlindum okkar séu tryggð, að sérlausnir sem taka tillit til sérstöðu okkar í sjávarútvegi og landbúnaði liggi fyrir, að staðið verði vörð um norræna vinnumarkaðsmódelið og að Ísland geti hafið myntsamstarf og tekið upp evru eins nálægt aðild og aðstæður leyfa. Ástæðan fyrir því að við erum að velta fyrir okkur þessu skrefi er nefnilega ekki sú að við þurfum á aðild að halda vegna þess að staða Íslands sé veik, heldur sú að samningsstaða okkar hefur aldrei verið sterkari. Breytt heimsmynd, uppstokkun á þeim alþjóðakerfum sem bundið hafa vinaþjóðir í Vesturheimi saman eftir seinni heimsstyrjöld og þroskaðri samfélagsgerð á Íslandi kalla á endurmat á því hvar við ætlum að staðsetja okkur í fyrirsjáanlegri framtíð. Á hinni hliðinni liggur fyrir að Evrópusambandið vill mjög fá okkur inn, hefur lýst því yfir að tekið verði fullt tillit til sérstöðu okkar í lykilmálum og slegið á allar bábiljur um að viðræður feli í sér nokkuð annað en nákvæmlega það. Frábært að eiga krónu en ferlegt að skulda hana Þrátt fyrir mikinn efnahagslegan árangur Íslands þá liggur fyrir að peningamálastefnan er að virka fyrir sífellt minni hóp. Hin rúmlega 100 ára gamla króna ber með sér verðtryggingu, mun meiri verðbólgu og mun hærri vexti en í öllum samanburðarlöndum. Þetta krónuálag leggur vaxtaklyfjar á heimili, fyrirtæki og hið opinbera sem kostar íslenskt samfélag hundruð milljarða króna á ári, felur í sér óstöðugleika, fælir frá samkeppni og fjárfestingu og dregur úr fyrirsjáanleika. Leiðandi rödd í íslenskum hugvits- og nýsköpunariðnaði benti fyrir skemmstu á að þar sem um kostnaðinn sem sé mælanlegur, en svo séu „líka tækifærin sem aldrei urðu sem kosta okkur mikið.“ Nú þegar íslenskt samfélag hefur fjölgað stoðunum undir efnahagskerfinu mikið á örfáum áratugum, landsmönnum hefur fjölgað hlutfallslega meira en í öllum samanburðarlöndum og heimsmynd frjálsra viðskipta er hratt að færast í aukna efnahagslega einangrunarhyggju stórvelda þá er rétt að endurmeta stöðuna og sjá hvort annað kerfi og fyrirkomulag virki ekki betur fyrir Ísland. Er betra að ganga inn í Evrópusambandið, sé það tilbúið að mæta skilyrðum okkar, taka upp evru og losna við krónuálagið? Líkt og fyrrverandi forseti lýðveldisins sagði svo vel nýverið um krónuna þá „er frábært að eiga hana en það er ferlegt að skulda hana“ og í fjárhættuspilinu sem heimili og fyrirtæki landsins eru látin taka þátt í með henni sé eitt ljóst umfram allt annað: „bankinn vinnur alltaf.“ Þjóðin fer með valdið Þann 29. ágúst fer þjóðin með valdið. Hún hefur tækifæri til að velja að fara í viðræður sem gætu skilað okkur formlega í lið með okkar helstu vinaþjóðum á víðsjárverðum tímum breytinga og óvissu, gætu fært Íslandi fjöldamörg tækifæri til að vaxa og styrkjast enn frekar og um leið losað heimili og fyrirtæki við mörg hundruð milljarða króna kostnað fyrir það eitt að geta haldið úti eigin verðtryggða gjaldmiðli sem skerðir lífsgæði flestra en eykur ávöxtun á bankareikningum fárra. Ég hvet landsmenn til að máta kostina og gallanna við eigin veruleika. Ég hvet þá til að horfa á það ferli sem er fram undan sem glugga til að styrkja okkur sem þjóð. Sagan sýnir að fáum, ef einhverjum, tekst að nýta sér alþjóðasamstarf til jafn mikils framdráttar og lífskjarasóknar og okkur Íslendingum. Engin ástæða er til að ætla að viðræður og möguleg aðild að Evrópusambandinu nú verði annars eðlis. Þvert á móti treysti ég sitjandi stjórnvöldum, kosnum til valda til að gæta almannahagsmuna á breiðum grundvelli, sem hafa sýnt það aftur og aftur að þau hræðast ekki að taka slaginn fyrir fjöldann gegn þeim fáu, mjög vel til að skila okkur samningi sem getur gert frábært land enn betra á sama tíma. Og ég treysti okkur sem þjóð til að samþykkja aldrei samning sem gerir það ekki. Hunsum hræðsluáróður og úrtölur. Verum stolt, stór og full af sjálfstrausti. Trúum á Ísland, trúum á möguleikana, trúum á aukin tækifæri. Segjum Já 29. ágúst. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, stoltur Íslendingur og hefur óbilandi trú á möguleikum sinnar þjóðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar