Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar 22. ágúst 2026 12:46 Ímyndum okkur háaldraðan mann. Hann býr einn. Eiginkonan er látin, gömlu vinirnir hafa týnt tölunni, börnin og barnabörnin eiga sitt líf. Þau koma annað veifið í heimsókn en þess á milli geta liðið margir langir dagar. Hann viðurkennir, þegar eftir því er gengið, að leiði komi yfir hann annað slagið og hann eigi það til að tala bæði við sjálfan sig og veggina. Þótt hann bregði fyrir sig gamansemi skín í gegn grár og dapurlegur veruleiki. Sumir dagar líða án þess að hann tali við nokkurn mann. Ímyndum okkur líka að fulltrúi frá félagsþjónustu sveitarfélagsins banki upp á hjá gamla manninum einn góðan veðurdag með spjaldtölvu. Hann er ekki kominn til þess að kenna öldungnum á tölvu eða halda fyrirlestur um gervigreind. Hann sýnir honum einfaldlega hvernig hægt er að tala við gervigreindina. „Um hvað finnst þér gaman að tala?“ Gamli maðurinn nefnir æskustöðvarnar á Grímsstaðaholti. Þar hafi verið margt eftirminnilegt fólk, Dóri í fiskbúðinni, Jósefína spákona og Sigurjón grásleppukarl. Hann segir frá Mývatnssveitinni þar sem hann dvaldi sumarlangt í sex sumur og fólkinu sem þar bjó. Gervigreindin spyr á móti: Hvernig var Dóri í fiskbúðinni? Spáði Jósefína einhvern tíma fyrir þér? Hvað var það við Mývatnssveitina sem dró þig þangað aftur sumar eftir sumar? Og gamli maðurinn fer að rifja upp. Daginn eftir prófar hann aftur. Nú ræða þeir gömlu lögin með Frank Sinatra og Billie Holiday, stofnun Þróttar á Holtinu, fréttir dagsins eða gömlu vinnustaðina. Stundum vill hann fræðast um eitthvað nýtt, stundum einfaldlega rifja upp liðna tíð. Hann þarf ekki að skrifa. Hann talar bara og fær svar á íslensku — ekki gullaldaríslensku, en á vel skiljanlegu máli. Gervigreindin styttir honum ekki aðeins stundir. Hún kveikir á minninu. Maðurinn sem áður talaði við vegginn hefur eignast eins konar „vin“ sem er alltaf til staðar. En hann hefur líka eignast nokkuð annað. Bætt lífsgæði? Í gegnum gervigreindina getur gamli maðurinn horft aftur til fortíðar, fylgst með nútíðinni og velt fyrir sér framtíðinni. Hann getur rifjað upp, spurt, efast, rökrætt og lært. Heimurinn sem hafði smám saman minnkað eftir því sem árin liðu stækkar allt í einu á ný. Það segir sig sjálft að gervigreindin kemur ekki í stað fjölskyldu eða vina. Hún faðmar ekki gamla manninn og drekkur ekki með honum kaffibolla. En hún rýfur þögnina og opnar farveg fyrir samtöl. Þetta er tilbúið dæmi. En tæknin er þegar til staðar. Og þá blasir við spurningin: Gæti gervigreind bætt lífsgæði aldraðs fólks sem býr eitt og hefur lítil félagsleg samskipti? Óvæntur félagsskapur Umræður um ógnir gervigreindarinnar eru háværar: að hún taki frá okkur atvinnuna, nemendur geti látið hana vinna skólaverkefnin og hún geti búið til falsaðar myndir og falsfréttir og kynt undir upplýsingaóreiðu. Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af persónuvernd og áhrifum gervigreindar á samfélagið. En á sama tíma hefur hún sannað gildi sitt á sviðum þar sem líkast til fæstir sáu fyrir sér að hún myndi breyta miklu. Félagsskapur er sennilega eitt af óvæntustu notagildum gervigreindarinnar. Einsemd og félagsleg einangrun eru raunverulegt heilbrigðisvandamál og háaldrað fólk sem býr eitt er sérstaklega berskjaldað. Fólkið sem hugsanlega gæti haft hvað mest gagn af þessari nýju tækni er einmitt fólkið sem er ólíklegast til að tileinka sér hana hjálparlaust. Þau sem eru á níræðis- eða tíræðisaldri og hafa litla tölvuþekkingu nota farsímann kannski fyrst og fremst til að hringja. Þau skrá sig tæplega sjálf á námskeið í gervigreind. Þess vegna duga ekki þau námskeið ein og sér sem sveitarfélög og félög eldri borgara bjóða upp á. Sveitarfélög taki frumkvæði Þetta er tækifæri fyrir sveitarfélögin til að standa við loforð um bættan aðbúnað aldraðra. Þau ættu að taka frumkvæðið. Þau sinna þegar þjónustu við aldrað fólk sem býr heima og hafa því leiðir til að ná til hópsins. Hvers vegna ekki að hefja afmarkað tilraunaverkefni? Sveitarfélögin gætu boðið öldruðu fólki sem býr eitt persónulega aðstoð við að stíga fyrstu skrefin og síðan fylgst með reynslunni í nokkra mánuði. Notar fólkið gervigreindina? Hversu oft? Eru dagarnir síður einmanalegir? Hefur þetta áhrif á líðan þess og áhuga á umhverfinu? Ef fáir hefðu áhuga eða gagn af þessu væri það auðvitað ákveðinn lærdómur. En ef fólk sem áður bjó við mikla einangrun fyndi fyrir meiri félagsskap, örvun og betri líðan, værum við þá ekki komin með mikilvæga vísbendingu um nýja leið til að bæta lífsgæði aldraðra? Samstundis vaknar önnur áhugaverð spurning. Við vitum að félagsleg einangrun og lítil vitræn virkni tengjast aukinni hættu á vitrænni hnignun. Auðvitað eru engar rannsóknir sem sýna að daglegt spjall við gervigreind komi í veg fyrir heilabilun og ábyrgðarlaust væri að fullyrða slíkt. En sá sem áður sat einn heima getur í félagsskap gervigreindar rifjað upp atburði, leitað í minninu, sagt sögur, rökrætt, svarað spurningum og lært eitthvað nýtt. Gervigreindin hlustar ávallt þolinmóð, brýnir aldrei röddina, þreytist ekki og svarar á vinsamlegum nótum. Gæti slíkt daglegt samtal hjálpað öldruðu fólki að halda huganum virkum lengur? Við vitum það ekki. En væri það ekki þess virði að komast að því? Gluggi út í lífið Undirstrika verður samt rækilega að gervigreind má aldrei verða ódýr leið fyrir sveitarfélög til að draga úr mannlegri þjónustu við aldraða. Hún á að vera viðbót við mannleg samskipti, ekki staðgengill þeirra. Á síðustu misserum höfum við varið miklum tíma í að ræða hvað gervigreindin geti gert fyrir atvinnulífið, heilbrigðiskerfið og skólana. Ef til vill ættum við líka að spyrja hvað hún geti gert fyrir gamla fólkið sem situr eitt heima og hefur engan til að tala við. Gervigreindin getur ekki komið í stað fólks. En hún getur rofið þögnina og opnað glugga út í lífið. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Gunnar Salvarsson Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar