Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon, Hrund Rudolfsdóttir og Margrét Kristmannsdóttir skrifa 23. ágúst 2026 07:02 Það vakti óneitanlega athygli þegar Samtök atvinnulífsins birtu niðurstöðu viðhorfskönnunar þess efnis að 66% aðildarfyrirtækja samtakanna væru andvíg því að Ísland gengi í Evrópusambandið. Voru margir á þeirri skoðun að frekar hefði átt að beina þeirri spurningu til félagsmanna hvort að taka ætti upp viðræður að nýju við ESB, eins og spurningin mun hljóða í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst nk. En af um 2.000 aðildarfyrirtækjum SA svöruðu samtals 591 fyrirtæki þessari spurningu í könnunni og þar af 388 neitandi, eða innan við 20% aðildarfyrirtækja samtakanna. Þess vegna er sú framsetning sem sést hefur í fjölmiðlum að 66% fyrirtækja innan SA séu málinu mótfallin í besta falli villandi. Í árlegri leit sinni að framúrskarandi fyrirtækjum skoðar Creditinfo um 22.000 fyrirtæki enda fanga að leita mun víðar en hjá þeim 2.000 félagsmönnum sem tilheyra SA. Þar sem lítil og meðalstór fyrirtæki eru hryggjarstykkið í íslensku atvinnulífi er sú spurning óneitanlega mjög áleitin hvert viðhorf þeirra 20.000 fyrirtækja sem ekki eru aðilar að SA er til aðildarviðræðna við ESB. Við þekkjum fá dæmi um að meiri upplýsingar leiði til verri niðurstöðu og því eigum við erfitt með að trúa að meirihluti forsvarsmanna lítilla og meðalstórra fyrirtækja vilji ekki skoða möguleikann á því að komast í annað og stöðugra rekstrarumhverfi. Stjórnendur þeirra þekkja af eigin raun þá áskorun sem felst í því að reka fyrirtæki með óstöðugum gjaldmiðli og þurfa að búa við þann gríðarlega fjármagnskostnað sem stendur þeim til boða á íslenskum fjármálamarkaði. Sá aðstöðumunur sem er á milli þessara fyrirtækja og þeirra fjölmörgu sem mega starfa utan krónuhagkerfisins er beinlínis sláandi. Það eru í raun tvær tegundir fyrirtækja sem starfa á Íslandi í dag, þau sem eru lítt háð íslensku krónunni og hin sem eiga ekki annan kost og eru algerlega háð sveiflum þessa örgjaldmiðils. Þessi aðstöðumunur og skert samkeppnisstaða er nær aldrei dregin fram í umræðunni um rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og má það undrun sæta. Við undirrituð höfum um árabil staðið fyrir atvinnurekstri hér á landi og/eða verið í framvarðarsveit í hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki í verslunar- og þjónustugreinum. Reynsla okkar af þeim vettvangi hefur sannfært okkur um að íslenska krónan er einn stærsti dragbítur í daglegum rekstri fyrirtækja í þeim greinum. Í ljósi þessarar reynslu teljum við það beinlínis útilokað að 66% fyrirtækja á Íslandi séu ekki tilbúin til að láta á það reyna hvort annar gjaldmiðill en íslenska krónan geti ekki fært þeim lækkun á rekstrarkostnaði og meiri fyrirsjáanleika en nú er. Að tengjast með enn traustari hætti helstu viðskipta- og vinaþjóðum Íslands. Höfundur eru lögfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri SVÞ, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi formaður SVÞ og loks framkvæmdastjóri og fyrrverandi formaður FKA og SVÞ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Andrés Magnússon Margrét Kristmannsdóttir Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar