„Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Andri Már Eggertsson skrifar 23. ágúst 2026 21:22 Lárus Orri hefði viljað þrjú stig miðað við síðari hálfleik liðsins Vísir / Anton Brink ÍA gerði 1-1 jafntefli við FH á heimavelli. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ekki sáttur með fyrri hálfleik liðsins. „
Ég er svekktur að hafa ekki tekið þrjú stig. Við vorum ekki ánægðir með fyrri hálfleikinn þó við værum ekkert lakari aðilinn heldur var þetta of mikið borðtennis og við héldum boltanum ekki niðri. Þetta var fínasta lexía fyrir okkur að sjá að ef þú tekur fótinn af bensíngjöfinni þá gerist þetta.“ „Í seinni hálfleik kannaðist ég aftur við mitt lið. Ef við eigum að vera sanngjarnir áttum við skilið þrjú stig úr þessum leik en maður fær ekki alltaf allt sem maður vill,“ sagði Lárus Orri í viðtali eftir leik. Lárus tók undir að það hafi gengið betur hjá hans liði eftir að hann gerði tvöfalda skiptingu eftir tæplega klukkutíma leik og Lárus var ánægður með framlagið hjá þeim sem komu inn á. „Þeir stóðu sig vel strákarnir sem komu inn á og Gísli Eyjólfsson fór inn á miðjuna. Breytingin var bara að við vorum ákveðnari og vorum að vinna einvígin okkar sem við höfum verið að gera.“ „FH liðið er með helling af góðum leikmönnum. Ég er löngu búinn að missa töluna af leikmönnum sem þeir eru búnir að fá. Við tökum stigið en ég hefði viljað hafa þau þrjú.“ Aðspurður út í markið sem Gísli Eyjólfsson skoraði sagði Lárus að það hafi ekki komið af æfingasvæðinu. „Ég hefði gjarnan verið til í að ljúga því að svo hafi verið en þetta kom ekki af æfingasvæðinu.“ Lárus Orri óskaði eftir því að sérfræðingarnir í Stúkunni myndu skoða atvikið þegar Skagamenn vildu fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þar sem boltinn fór í hendina á Baldvin Kára Helgasyni. „Það væri ágætt ef sérfræðingarnir myndu kíkja á hendina í fyrri hálfleik. Ég veit ekki hvað við höfum fengið á okkur mörg víti fyrir hendi og svo var neglt í hendina á honum og þeir verða að skoða það í stúkunni,“ sagði Lárus að lokum.
ÍA FH Besta deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Ótrúleg frumraun á Íslandi og heimsmetið var í hættu Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hyrox stefnir á Ólympíuleikana Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira