„Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Sindri Sverrisson skrifar 25. ágúst 2026 15:17 Ísak Bergmann Jóhannesson myndaði A með fingrunum fyrir unnustu sina, Agnesi Perlu. Getty/Karl-Josef Hildenbrand Ísak Bergmann Jóhannesson tileinkaði unnustu sinni bæði mörkin eftir að hafa forðað Köln frá hneyksli í 2-1 sigri á 3. deildarliði Würzburger Kickers í þýsku bikarkeppninni. Hann fékk mikið hrós frá þjálfara sínum eftir leik.
Óhætt er að segja að hinn 23 ára gamli Ísak byrji nýtt tímabil með Köln af krafti. Hann var nokkuð aftarlega á miðjunni í fyrri hálfleik gegn Würzburger en þegar liðið var 1-0 undir í hálfleik fékk hann að fara framar og þakkaði fyrir sig með tveimur mörkum. View this post on Instagram A post shared by Ísak Bergmann Jóhannesson (@isak.bergmann.johannesson) Það seinna, sigurmarkið, var skot í stöng og inn eins og sjá má hér að neðan eða í hápunktum leiksins með því að smella hér. View this post on Instagram A post shared by 1. FC Köln (@fckoeln) Mörkunum fagnaði Ísak með því að mynda A með fingrunum, fyrir unnustu sína Agnesi Perlu Sigurðardóttur sem hann trúlofaðist í sumar. „Það var klárlega svolítil heppni í fyrra markinu en seinna markið skoraði hann með snilldarhætti,“ sagði René Wagner, þjálfari Kölnar, ánægður með Ísak eftir leik. „Ég er ánægður með að hann sé að fóta sig betur í hlutverkinu fram og aftur á miðjunni. Hann býr yfir einstaklega breiðu bili hæfileika,“ sagði Wagner. Fyrsti deildarleikur Kölnar á nýrri leiktíð er við Hoffenheim á heimavelli á laugardaginn.
Þýski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Sjá meira