Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar 26. ágúst 2026 08:00 Það er með ólíkindum hve auðvelt Ólafi Ragnari Grímssyni virðist enn að koma sér fyrir í hlutverki hins mikla raunsæis- og kennimanns í íslenskri utanríkismálaumræðu. Hann talar af öryggi, þungum rómi og mikilli sannfæringu — en þegar litið er yfir feril hans vaknar hin augljósa spurning: Hvar er efahyggja vísindamannsins? Ekki efahyggja í þeim skilningi að efast um eigin skoðanir, heldur sú vitsmunalega auðmýkt að gera ráð fyrir að maður geti haft rangt fyrir sér. Saga Ólafs Ragnars í helstu utanríkismálum og samningum þjóðarinnar er saga manns sem sá hættur og hamfarir þar sem aðrir sáu tækifæri. Hann barðist gegn EFTA-aðild Íslands árið 1970 og taldi hana meðal annars ógna efnahagslegu fullveldi þjóðarinnar. Hann var síðan árum saman eindreginn andstæðingur NATO og talaði fyrir úrsögn Íslands. Og þegar EES-samningurinn kom til kasta Alþingis á árunum 1992–1993 var hann einn harðasti andstæðingur hans og greiddi að lokum atkvæði gegn samningnum. Þetta eru ekki smávægileg dæmi. EFTA, NATO og EES hafa öll orðið mikilvægir þættir í utanríkis- og öryggismálum Íslands. Eiginilega nokkurs konar hornsteinar utanríkisstefnunnar. Ísland hefur sem betur fer ekki yfirgefið þessi samstarfsform vegna þeirra hættulegu afleiðinga sem Ólafur Ragnar varaði við og gengu ekki eftir. Þvert á móti hafa þau orðið svo sjálfsagður hluti af stöðu Íslands að fáum dettur í hug að ræða þau með þeim skelfingartóni sem einkenndi málflutning hans á sínum tíma. Og nú er hann kominn aftur, enn og aftur, með sama vilja að vopni; að gefa þjóðinni ráð en engin veð. Nú er það Evrópusambandið. Aftur er það fullveldið sem er í hættu, aftur eru varnaðarorðin stór og aftur virðist niðurstaðan gefin fyrirfram. Í málflutningi sínum og rangfærslum hefur Ólafur Ragnar meira að segja haldið því fram, án þess að blikna, að samningaviðræður við ESB séu þegar hafnar þrátt fyrir að vita betur. Sem betur fer er saga þjóðarinnar sú, a.m.k. hingað til, að hún hefur ekki tekið mark á hávaðanum í Ólafi Ragnari þegar kemur að ákvörðunum í stórum málum til lengri tíma í utanríkismálum. Það hefur reynst henni afar farsælt. Það merkilega nú er ekki að Ólafur Ragnar sé andvígur viðræðum við ESB. Það er fullkomlega lögmæt afstaða. Það merkilega er hversu lítið svigrúm virðist enn vera í málflutningi hans fyrir því að raunveruleikinn geti orðið annar en hann spáir fyrir um, þrátt fyrir harmsögu reynslunnar. Við þessar aðstæður hefði raunveruleg efahyggja hjá Ólafi falið í sér að segja eitthvað á þessa lund: Við skulum kanna málið; við skulum semja; við skulum setja fram kröfur og sjá svörin; sjá hvað fæst og hvað ekki; bera saman kosti og galla og láta þjóðina síðan taka upplýsta ákvörðun með allar upplýsingar á borðinu. Þess í stað virðist Ólafur Ragnar aftur komast að niðurstöðu áður en rannsókn hefst. Það er andstæða þess hugarfars sem vísindaleg hugsun byggist á: að setja fram tilgátu, kanna gögnin og vera reiðubúinn að endurskoða niðurstöðuna þegar staðreyndirnar gefa tilefni til. Það er kannski stærsti veikleiki þessa stjórnmálamanns. Ekki að hann hafi haft rangt fyrir sér — það hafa allir. Heldur að áratugir af reynslu virðast ekki hafa aukið á efasemdir hans sjálfs um eigin dóma. Maður skyldi ætla að sá sem hefur barist gegn EFTA, NATO og EES og horft á þessi samstarfsform verða að varanlegum og mikilvægum stoðum íslensks samfélags yrði með árunum aðeins varkárari í spám sínum um endalok alheimsins. Að minnsta kosti aðeins hógværari í fullyrðingum um yfirvofandi hættur og heimsendaspár þegar kemur að samstarfi og samvinnu við erlendar þjóðir. Ólafur virðist þó ekki sjá þetta þannig. En nei. Ólafur Ragnar kemur aftur og aftur og talar áfram líktog reynslan hafi ekkert kennt og hann ekkert lært. Það er vísasti vegur til háðungar fyrir stjórnmálamann að læra ekki af fortíðinni, reynslunni, eigin mistökum. En enn ólánsamara eru þær aðstæður þegar þjóðin tekur orð hans sem sérstakan vitnisburð um pólitískt raunsæi, þrátt fyrir þann veruleika sem liggur fyrir um afstöðu hans til lykilmála. Kannski ættum við, þjóðin, einfaldlega að hafa eina spurningu í huga, nú þegar Ólafur Ragnar stígur aftur fram sem hinn mikli spámaður í utanríkismálum og vill leggja línu fyrir þjóðina varðandi samningaviðræður við ESB: Hvað ef hann hefur enn einu sinni rangt fyrir sér? Reynslan gefur okkur tilefni til að efast. Höfundur er hæstaréttarlögmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar