Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar 26. ágúst 2026 11:02 Á laugardag verður ein mikilvægasta atkvæðagreiðsla sem Íslendingar hafa tekið þátt í. Úrslitin gætu orðið tvísýn. Ef niðurstaðan verður JÁ hefur þjóðin valið að halda tækifærum sínum opnum. Tækifæri sem fela meðal annars í sér: Alvöru gjaldmiðil með lægri vöxtum og áhættuálagi Efnahagslegan stöðugleika og aukinn fyrirsjáanleika Lægra vöruverð, aukna samkeppni og bætt lífskjör Að eflaöryggi gegn náttúruhamförum og ytri ógnunum Að tryggja sjálfstæði landsins og fullveldi Að fullt tillit verði tekið til sérstöðu landsins Aukin áhrif á gerð regluverks sem við innleiðum Evrópusambandið er samband fullvalda lýðræðisríkja. Talið er að samningsstaða Íslands hafi aldrei verið betri m.a. vegna aukins áhuga á norðurslóðum, að Noregur og Bretland eru fyrir utan sambandið og að Ísland yrði hvatningin fyrir Noreg að ganga inn í Evrópusambandið. Aðildarsamningur gæti orðið mjög hagfelldur fyrir Ísland. Þegar samningur lægi fyrir, yrði hann borinn undir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu. Lægri vextir og aukinn stöðugleiki með evru Nú eru vextir hér á landi himinháir sem er ekki bjóðandi almenningi né fyrirtækjum í landinu. Slíkir okurvextir valda efnahagslegri stöðnun og verða m.a. til þess að ungt fólk flytur síður heim úr námi og stór hluti sérverslunar flyst smám saman úr landi. Ókostir krónunnar og hvernig hún mismunar almenningi og fyrirtækjum kemur skýrt fram í þeirri staðreynd að sum þeirra nýta evru í uppgjörum og fjármögnun á meðan öðrum er það bannað. Líta má á verðtryggða krónu sem sérstakan gjaldmiðil. Hér á landi eru leigufélög og einstaklingar sem hafa hag af því að gera samninga í verðtryggðri krónu. Þetta fyrirkomulag gerir það að verkum að mánaðarlega hækkar húsaleigan sjálfvirkt. Hækkunin getur verið vegna þátta sem eru alls ótengdir fasteignaverði, t.d. hækkun flugfarmiða. Þannig verður verðtryggð króna nokkurskonar sjálfvirk peningavél hjá leigusölum. Stöðugur gjaldmiðill myndi koma í veg fyrir slíkt. Það væri mikil breyting til batnaðar ef Íslendingum auðnaðist að taka upp næststærsta gjalmiðil heims í stað krónu sem er einn sá minnsti og sérstaklega kostnaðarsamur. Fyrrverandi seðlabankastjóri hefur sagt að æ erfiðara sé að halda úti sjálfstæðri peningastefnu fyrir svo smáan gjaldmiðil. Innleiðing evru í stað krónu með stuðningi evrópska seðlabankans ætti ekki að taka nema nokkur ár. Vaxtalækkunin gæti hafist með trúverðugri leið að evru, jafnvel fljótlega eftir aðild og áhættuálag myndi lækka þegar peningastefnan lægi fyrir. Framtíðarsýn og möguleikar Þegar aðildarsamningur liggur fyrir geta Íslendingar tekið afstöðu sem byggir á staðreyndum. Slíkur samningur lýsir tækifærum sem aðildin myndi færaokkur. Það má teljast einkennilegt að vilja ekki sjá möguleika landsins í aðildasamningi. Það vekur athygli að einstaklingar sem hafa verið á móti ýmsum öðrum framfaraskrefum svo sem aðild að NATO, EFTA og EES séu jafnframt á móti því að Íslendingar kanni samningstöðu sína gagnvart Evrópusambandinu. Vantar ekki alla framtíðarsýn í slík viðhorf? Viðhorf vinaþjóða Vinaþjóðir okkar meta það greinilega mikils að vera hluti af sambandi þjóða með sameiginleg gildi og sambærilega hagsmuni. Um þrír af hverjum fjórum íbúum innan ESB telja aðildina hafa fært landi sínu raunverulegan ávinning samkvæmt nýlegri könnun. Í Svíþjóð hefur stuðningur við ESB-aðild farið vaxandi síðustu ár og mælist á bilinu 75-85% samkvæmt Eurobarometer og sænsku tölfræðistofnuninni (SCB). Það er talsvert hærra en þegar Svíar kusu um aðild árið 1994. Danir hafa verið í ESB frá 1973 og hafa jafnan mælst með einn mesta stuðning allra aðildarþjóða, allt að 85% Dana eru ánægð með ESB. Í Finnlandi hefur stuðningur við ESB-aðild aukist og er nú 75-80%. Tækifærin Ísland hefur innleitt um þrjá fjórðu af meginreglum ESB í gegnum EES. Fyrir utan þessar meginreglur eru ýmsar tímabundnar reglur sem teljast ekki með meginreglum. Því má segja að við séum nú að stórum hluta innan meginreglna sambandsins án þess að hafa þar áhrif. Með aðild að ESB hefði Ísland rödd og áhrif meðal annars með því að ráðherrarokkar sætu í ráðherraráði sambandsins og í leiðtogaráðinu. Auk þess hefði Ísland einn framkvæmdastjóra, dómara við Evrópudómstólinn og sex þingmenn á Evrópuþinginu sem þýðir að íslenskur kjósandi hefði þar 13 sinnum meira vægi en sá þýski. Smáríki hafa því hlutfallslega mun meira vægi en þau stóru. JÁ á laugardaginn opnar á möguleika til að sjá hvaða tækifæri bjóðastframtíðarkynslóðum landsins. JÁ er svarið ef þú vilt hagfelldan aðildarsamning sem færir okkur bætt lífskjör, stöðugleika og aukið öryggi. Höfundur er formaður Viðreisnar á Seltjarnarnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar