Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar 26. ágúst 2026 16:30 Á hverjum morgni undanfarnar vikur hef ég sest niður með kaffibollann minn, tekið upp símann og skrollað í gegnum samfélagsmiðla til að fylgjast með umræðunni sem tröllríður öllu þessa dagana. Merkilegast finnst mér að á þessu skrolli hef ég komist að ýmsu um sjálfa mig sem „neiliði“ í þessari umræðu. Ef marka má sumt sem þar er sagt er ég víst þröngsýn, lygin, ómálefnaleg, upplýsingafælin og hrædd. Ég þjáist af mikilli vanþekkingu og læt „elítu landsins“ hafa áhrif á afstöðu mína. Vandinn er bara sá að ég kannast ekkert sérstaklega vel við þessa manneskju. Ég tel mig ekki þröngsýna. Þvert á móti tel ég mig tilbúna að hlusta á rök, kynna mér ólíkar hliðar mála og eiga samtal við fólk sem er mér ósammála. Ég er heldur ekkert sérstaklega góður lygari og reyni eftir fremsta megni að vera málefnaleg. Ég vil ræða málefnið en ekki fara í manninn. En hey, ég er auðvitað mannleg líka. Upplýsingafælin er ég ekki. Ég lít á upplýsingaöflun sem forsendu þess að geta tekið upplýstar ákvarðanir. Ég verð aldrei sérfræðingur á öllum sviðum, frekar en nokkur annar, en ég get gert mitt besta til að skilja málin áður en ég tek afstöðu. Stundum leiðir sú upplýsingaöflun mig einfaldlega að annarri niðurstöðu en aðra, það hlýtur að mega. Já, ég er hrædd Í sambandi við alla umræðu um hræðslu skal ég viðurkenna eitt: Ég er hrædd. Ég er hrædd við að færa ákvarðanatöku lengra frá íslenskum almenningi og minnka það svigrúm sem við höfum sem lítið samfélag til að bregðast við þegar áföll dynja yfir. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ESB-aðild þýðir ekki að Ísland hætti að vera sjálfstætt ríki eða að íslenskt lýðræði hverfi. En aðild þýðir að á fleiri sviðum tökum við þátt í sameiginlegri ákvarðanatöku með öðrum ríkjum sambandsins og þar liggur einfaldlega stór hluti af minni afstöðu. Ég vil að ákvarðanir sem varða grundvallarhagsmuni okkar séu teknar eins nálægt íslenskum almenningi og kostur er. Ég vil geta gengið að ráðafólkinu okkar, krafið það svara og kosið það frá völdum. Hvaða „elítu“ er ég eiginlega að verja? Hvað „elítu landsins“ varðar á ég engra sérstakra hagsmuna að gæta þar. Ég er ekki útgerðarmaður, stórbóndi eða auðmaður. Ég á ekki fjármagn sem ég þarf sérstaklega að verja og hef ekki meiri sérhagsmuna að gæta en meðal Jón. En með nei-inu er ég vissulega að verja eigin hagsmuni. Ég er að verja það sem ég tel vera hagsmuni mína, fjölskyldunnar minnar og barnanna minna. Ekki peningalega hagsmuni eða hagsmuni einhverrar auðmannastéttar eða útgerðarelítu. Ég er að verja þá sannfæringu mína að við eigum sjálf að hafa sem mest um það að segja hvernig samfélag við byggjum hér upp og hvaða leiðir við veljum okkur til framtíðar. Þess vegna er afstaða mín í grunninn ekkert sérstaklega flókin. Ég vil ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ekki vegna þess að ég sé á móti Evrópu, ekki vegna þess að ég vilji einangra Ísland og alls ekki vegna þess að ég telji að allt sem við gerum hér sé fullkomið, langt því frá. Ég hef einfaldlega bara mikla trú á okkur sjálfum. Nei við ESB er ekki nei við breytingum Ég vil lægri vexti og minni verðbólgu. Ég vil hraðari uppbyggingu innviða. Ég vil meiri efnahagslegan stöðugleika. Ég vil að ungt fólk geti eignast húsnæði, að fjölskyldur þurfi ekki að horfa á afborganir húsnæðislána rjúka upp úr öllu valdi og að fyrirtæki geti gert áætlanir til lengri tíma enda tel ég ekki heldur að við eigum að halda dauðahaldi í allt eins og það er í dag. Ég hef til dæmis ekki tekið endanlega afstöðu til framtíðar krónunnar. Ef núverandi fyrirkomulag þjónar okkur ekki nægilega vel eigum við að vera óhrædd við að ræða aðrar leiðir. En það að vilja breytingar þýðir ekki að niðurstaðan þurfi sjálfkrafa að vera ESB-aðild. Við eigum að laga það sem þarf að laga, læra af öðrum og breyta um stefnu þegar rökin, gögnin og reynslan kalla á það. Þetta snýst ekki um að halda dauðahaldi í það sem við höfum. Þetta snýst um að halda í getuna til að velja sjálf hvað kemur næst. Þá kem ég aftur að börnunum mínum Því á endanum er þetta spurningin sem situr eftir hjá mér: Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja nei? Er ég að loka fyrir tækifæri þeirra, að velja óstöðugleika fyrir þau, eða að vera þröngsýn fyrir þeirra hönd? Ég hef hugsað mikið um það og niðurstaðan mín er nei. Ég vil að börnin mín alist upp í landi sem á í öflugu samstarfi við umheiminn, tekur virkan þátt í alþjóðasamfélaginu og horfir óhrætt út fyrir eigin landsteinana en ég vil líka að þau búi í landi þar sem þau geta haft sem mest áhrif á þær ákvarðanir sem móta samfélagið þeirra. Þar sem þau geta krafið ráðamenn sína svara og kosið þá frá völdum. Þar sem þau skilja að sjálfstæði þýðir ekki einangrun og samstarf þarf ekki alltaf að þýða aðild. Ég vil að þau hafi trú á því að lítil þjóð geti staðið á eigin fótum án þess að standa ein. Kannski hef ég rangt fyrir mér, kannski mun framtíðin sýna að þeir sem eru mér ósammála höfðu rétt fyrir sér því enginn okkar sér framtíðina. En þegar ég tek afstöðu til framtíðar Íslands ætla ég ekki að gera það út frá því hvað ég er kölluð á samfélagsmiðlum. Ég ætla að gera það út frá því sem ég, eftir bestu getu og að vel athuguðu máli, tel vera rétt fyrir landið mitt og börnin mín. Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja nei? Ég held ekki. Ég held að ég sé líka að kenna þeim svolítið mikilvægt: Að hlusta, kynna sér málin, vera tilbúin að skipta um skoðun ef rökin kalla á það og bera virðingu fyrir þeim sem komast að annarri niðurstöðu. En líka að þora að standa með eigin sannfæringu, jafnvel þegar einhver kallar þig þröngsýna fyrir vikið og þess vegna segi ég nei. Ekki vegna þess að ég sé hrædd við framtíðina. Heldur vegna þess að ég hef trú á því að við getum mótað hana sjálf. Höfundur er oddviti Framsóknar og óháðra í Dalvíkurbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar