„Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Katla Margrét Jónsdóttir skrifar 26. ágúst 2026 21:22 Sunna var frábær í kvöld. vísir/guðmundur Sunna Rún Sigurðardóttir var að vonum ánægð eftir 8-1 stórsigur Blika á Kópavogsvelli í dag, í fyrstu umferð í Evrópukeppninni.
Blikar höfðu mikla yfirburði frá fyrstu mínútu og Sunna segir sterka liðsheild hafa lagt grunninn að sannfærandi sigri. Andstæðingurinn var hins vegar að mestu óskrifað blað fyrir leik og viðurkennir Sunna að frammistaða þeirra hafi komið Blikum nokkuð á óvart. „Við vissum eiginlega ekkert hvað við vorum að fara út í. Í fullkomni hreinskilni þá vissum við ekkert um liðið, hvernig þær væru. Við vissum bara að þær væru góðar í sinni deild, en vissum svo sem ekkert um deildina. Þetta kom okkur á óvart,“ sagði Sunna Rún Sigurðardóttir spurð hvort að úrslitin og framgangur leiksins hefði komið henni á óvart. Sunna segir það ekki hafa nein áhrif á liðið að fara út í svona leik þar sem að andstæðingurinn er þeim algerlega ókunnur. „Við förum alltaf eins í alla leiki, gerum okkar og okkar plan. Við breytum ekki okkar leik fyrir þær. Við spilum bara okkar leik, alltaf.“ „Við vorum með yfirburði allan leikinn. Við hægðum aðeins á leiknum í síðustu tuttugu mínútunum. Þá vorum við komnar 8-0 yfir og það er eðlilegt að gera það. Við hefðum geta skorað meira og unnið stærra, en þetta var mjög flottur sigur,“ sagði Sunna Rún spurð út í leikinn. Sunna lýsir því hvernig það hafi verið liðsheild Blika sem skilaði þessari frammistöðu á Kópavogsvelli í dag. „Við vorum allar algjörlega með þetta í kvöld. Það lögðu sig allir alveg 100% fram, eins og alltaf. Það klikkaði ekkert í dag, við vorum allar með þetta,“ sagði Sunna aðspurð hvað hefði skilað Blikum þessari öflugu frammistöðu í dag. „Við erum með leik í deildinni á laugardaginn og ætlum að sækja þrjú stig þar. Við höldum okkar striki áfram. Svo förum við út á mánudaginn og tökum einnig leikinn þar,“ sagði Sunna aðspurð um næstu verkefni Blikakvenna.
Breiðablik Fótbolti Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira