Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 06:00 „Þrátt fyrir allar áætlanir og spár veit enginn hvað gerist næst," skrifaði Christian Klein, forstjóri hugbúnaðarrisans SAP, í Fortune byrjun árs. „Mér líður eins og ég sé að sigla án áttavita" er haft eftir öðrum forstjóra í nýlegri grein í Harvard Business Review, sem fjallar um stefnumörkun og dómgreind á tímum óvissu og gagnaskorts. Heimurinn sem við búum í einkennist af óvissu, miklum hraða og breytingum sem engin sér fyrir endann á. Margt kemur til. Loftslagsbreytingar, gervigreind, átök, geopólitísk spenna og breyttur vinnumarkaður. Þessi staða á við um okkur öll. Enginn veit hvernig heimurinn verður eftir tvö ár eða fimm. Slík óvissa gerir aðrar kröfur til okkar en við erum vön. Dómgreind skortir, ekki upplýsingar Það sem skortir í dag eru ekki upplýsingar. Það er dómgreind. Framboðið af upplýsingum er yfirþyrmandi, og oft er erfitt að greina á milli áreiðanlegra upplýsinga, óáreiðanlegra, hreins uppspuna og vitleysu. Að grisja það sem skiptir máli og rýna til gagns krefst góðrar dómgreindar. Af því breytingarnar gerast svo hratt, höfum við oft hvorki gögn né greiningar til að renna stoðum undir ákvarðanir okkar. Þá reiðum við okkur á innsæið til að vega og meta aðstæður og taka ákvarðanir. Þetta þekkjum við úr íþróttum, viðskiptum og stjórnmálum. Innsæið stýrir okkur miklu meira en við áttum okkur á. En fæst okkar hafa nokkurn tíma verið þjálfuð í því. ,,Er innsæi ekki bara innsæi?” Ég var spurð að þessu um daginn. Stutta svarið er nei. Innsæi er grundvallarþáttur í greind okkar allri, ekki lítill afmarkaður hluti af heilanum. Það fléttast saman við allt sem við gerum, hugsum og segjum. Við höfum öll innsæi, og við getum haft sterkt innsæi hvort sem við erum stærðfræðingar eða listafólk. Til að geta fært góð rök þurfum við vel þjálfað innsæi. Án innsæis væri lítið um nýsköpun og listsköpun. Rannsókn á hópi Nóbelsverðlaunahafa sýndi að innsæi lék lykilhlutverk í uppgötvunum þeirra, alveg sérstaklega hæfnin til að skipta á milli innsæis og greinandi hugsunar: súmma inn í smáatriðin og kafa djúpt, og vita svo hvenær á að súmma út og leyfa innsæinu að flæða og skapa tengingar í undirvitundinni. Og af því gervigreindin og óvissan kalla á vel þjálfað innsæi, skiptir máli að við þekkjum muninn á þjálfuðu og óþjálfuðu innsæi. Munurinn á þjálfuðu og óþjálfuðu innsæi Í vikunni hélt ég námskeið um þjálfað innsæi á tímum óvissu fyrir rúmlega fimm hundruð manns, frá Íslandi og öðrum löndum, og erindi fyrir þrjú hundruð forstjóra og mannauðsstjóra í Brasilíu. Þessi munur kom til tals á báðum stöðum. Óþjálfað innsæi gerir lítinn sem engan greinarmun á innsæi og ótta, innsæi og óskhyggju eða ómeðvituðum hugsanaskekkjum. Það sem manneskja með óþjálfað innsæi hræðist getur mótað „sannleikann" í hennar huga, án þess að nokkurn tíma sé rýnt í hann. Staðfestingarvilla er gott dæmi: ómeðvituð tilhneiging til að leita eftir, túlka og muna upplýsingar þannig að þær passi við þær skoðanir sem við höfum þegar. Þjálfað innsæi felur í sér næga sjálfsþekkingu og sjálfsrýni til að greina þarna á milli. Þegar við erum meðvituð um þá ólíku þætti sem hafa áhrif á dómgreind okkar, öðlumst við meira traust á okkur sjálfum á óvissutímum. Við eigum auðveldara með að taka ígrundaðar ákvarðanir, til skemmri og lengri tíma. Af hverju fjarlæg hætta virðist minni Við verðum líka meðvitaðri um að það er okkur eðlislægt að meta hættu sem er langt í burtu, sem minni en hún er í raun. Þess vegna finnst okkur eitthvað slæmt sem gerist í næsta mánuði miklu ógnvænlegra en nákvæmlega það sama eða stærra eftir fimm ár. Ástæðan er sú að fjarlægð gerir hlutina óskýra í huga okkar, og það er auðvelt að leiða óskýrt vandamál hjá sér, jafnvel þótt við vitum allar staðreyndirnar um það. Innri áttavitinn Greinahöfundar 5 Ways Organizations Can Pivot with Purpose í Harvard Business Review fjalla um mikilvægi þess að hafa sterkan innri áttavita á óvissutímum. Hann verður til með þjálfuðu innsæi, þekkingu og reynslu, og ekki síst sjálfsþekkingu og skýrum gildum. Þeir setja fram fimm grundvallarreglur um dómgreind á tímum óvissu: Horfast í augu við raunveruleikann. Spyrja erfiðra spurninga og festast ekki í úr sér gengnum ákvörðunum eða verkefnum sem þurfa endurskoðun. Vera trú tilgangi og gildum og halda kúrs þar, í stað þess að detta í viðbragðsstöðu eða fylgja bara síðasta ræðumanni. Aðlaga stefnu og aðferðir að breyttum aðstæðum. Reiða sig á fólkið í kringum sig um skapandi lausnir, í stað þess að draga sig í skel. Nota breyttar aðstæður sem stökkpall fyrir strategískar breytingar og nýjar hugmyndir. Lokaorð Enginn okkar veit hvernig heimurinn verður eftir fimm ár. Því breytum við ekki. Við ráðum hins vegar hvernig við mætum þeirri óvissu. Innsæi er ekki eiginleiki sem sumir fæðast með og aðrir ekki. Það er þjálfun sem tekur aldrei enda, og ábyrgð sem við tökum á eigin dómgreind. Því betur sem við þekkjum okkur sjálf og höfum þjálfað innsæið betur, því skýrara greinum við á milli innsæis og ótta, innsæis og óskhyggju, innsæis og hugsanaskekkja, og getum sett skýra stefnu þótt leiðin sé óljós. Enginn getur sagt þér hvernig heimurinn verður eftir fimm ár. En þú getur þjálfað getuna til að sigla inn í hann með sterkan innri áttavita. Höfundur er höfundur, stjórnendaþjálfi, þróunar-og átakafræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrund Gunnsteinsdóttir Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
„
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar