„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 28. ágúst 2026 06:00 Katrín Jakobsdóttir gegndi embætti forsætisráðherra í sjö ár en sagði af sér embætti til að bjóða sig fram til forseta. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir segist vera ósammála túlkun ríkisstjórnarinnar um að þjóðaratkvæðagreiðslan um helgina sé einungis til þess að skoða möguleikana. Afstaða hennar gagnvart aðildar að Evrópusambandinu sé breytt frá því að síðast var haldið í þá vegferð. „
Þetta er auðvitað ekkert venjulegt mál,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, að loknum samstöðufundi í gær. „Ég hef ákveðið að halda mig alveg utan við stjórnmálin, enda finnst mér ekki endilega að fyrrverandi stjórnmálamenn eigi að vera að tjá sig um málefni dagsins. En þessi atkvæðagreiðsla á laugardaginn snýst um risavaxið mál fyrir framtíð Íslands og mig langaði hreinlega að koma hingað og koma mínum sjónarmiðum á framfæri.“ Katrín hyggst greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu. Þetta var í fyrsta skipti í kosningabaráttunni sem hún greindi frá afstöðu sinni. Það samsvarar stefnu Vinstri grænna, flokksins sem hún leiddi áður, en fer þvert á það sem Rósa Björk Brynjólfsdóttir, núverandi formaður, ætlar að gera. Þrátt fyrir að Katrín hafi látið í sér heyra er hún ekki á leið aftur í stjórnmálin. „Nú er þetta bara þjóðaratkvæðagreiðsla og eins og komið hefur fram hjá Alþingi og ríkisstjórninni þá skiptir máli að þjóðin tjái sig. Ég er ekki á leið aftur í stjórnmál en ég er svo sannarlega hluti af þessari þjóð.“ Ósammála túlkun ríkisstjórnarinnar Í ræðu sinni á fundi Áfram Íslands sagði Katrín að engin þjóð færi í aðildarviðræður nema af því að hún vilji ganga í sambandið. „Ef niðurstaðan verður svo að samningur verður lagður fyrir þjóðina þá verður auðvitað aftur kosið. En við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn. Við leggjum ekki af stað í slíka vegferð, sem er auðvitað risastór pólitísk ákvörðun fyrir hverja þjóð, án þess að vilja ganga inn í Evrópusambandið,“ sagði Katrín. „Við erum að lýsa yfir vilja okkar hvort við viljum ganga inn eða ekki.“ Katrín sé því ósammála túlkun forsvarsfólks ríkisstjórnarinnar um að einungis sé verið að kíkja í pakkann en ekki greiða atkvæði um aðild. Evrópusambandið ekki svo lýðræðislegt Í ríkisstjórnartíð Jóhönnu Sigurðardóttur árið 2009, þegar Katrín var menntamálaráðherra, sagðist hún sjálf tilbúin til að kanna aðildarviðræður. Hvað breyttist í stórum dráttum? „Í stuttu máli þá var það svo að ég hafði mikla fyrirvara á Evrópusambandinu þá eins og nú, en við vorum auðvitað nýbúin að ganga í gegnum efnahagshrun þar sem málin voru gríðarlega erfið hér á Íslandi. Mér fannst það skylda mín að kanna þá leið en hún styrkti mig í þeirri sannfæringu minni að þetta væri ekki rétta leiðin fyrir Ísland,“ svaraði Katrín. Katrín ræddi við erlenda fjölmiðla á fundinum.Vísir/Berghildur Lagðar hafi verið afar harðar kröfur á þau ríki innan sambandsins sem lentu illa í efnahagskreppunni auk þess sem ekkert hafi gengið í samningaviðræðum um sjávarútveg og landbúnað. „Síðan auðvitað kynntist maður enn betur en maður vissi fyrir hversu svona stjórnarskipan Evrópusambandsins er í raun og veru ekki sú lýðræðislega stjórnarskipan sem ég vil halda í heiðri.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Líkamsárás í Breiðholti Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Fleiri fréttir Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Segir stóra ákvörðun framundan Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Sjá meira