Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Agnar Már Másson skrifar 28. ágúst 2026 19:23 Sebastian Starcevic, blaðamaður Politico, hefur skyggst á bakvið tjöldin í Brussel. Vísir Íslendingar greiða atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið á tíma þar sem ESB er í mikilli naflaskoðun vegna breyttrar heimsskipanar. Þetta er mat fréttamanns Politico sem þekkir vel til í ESB, en hann hefur skyggst á bakvið tjöldin í Brussel.
Hvað vægi hefur atkvæðagreiðslan 29. ágúst fyrir sjálft Evrópusambandið? Sebastian Starcevic, blaðamaður Politico í Evrópu, þekkir vel til í Brussel en hann er gestur í aukaþætti Vísis að Viðræðum. Hann skrifar meðal annars undir dálkinn „Brussels Playbook“ þar sem fjallað er um pólitíkina innan Evrópusambandsins. Starcevic hefur skyggst á bak við tjöldin og tekið púlsinn á ráðamönnum bæði í Brussel og Reykjavík í kringum atkvæðagreiðsluna. Hann skrifaði meðal annars um það grein í byrjun mánaðar. Þáttinn má horfa á í spilaranum hér að neðan. Einnig er hann aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Ath. að viðtalið er á ensku. Starcevic telur að Evrópusambandið sé í eins konar „sjálfsmyndarkrísu“ vegna margumtalaðra væringa í alþjóðamálum. Þar beri ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta í garð bandamannaríkja efst. En sú krísa þurfi ekki endilega að vera slæm. „Ég held að [ESB] sé að ákveða hvað það vill vera,“ segir Sebastian, „og hversu framarlega það vill standa í heiminum – ekki einu sinni til að standa framar Bandaríkjunum eða Kína, heldur bara til að halda í við þau.“ „Fjöður í hatt Brussels“ Evrópumenn eru að sögn Starcevic mjög spenntir að fá okkur, meðal annars vegna þess að Ísland hafi þegar innleitt mikið af Evrópuregluverkinu og að landfræðileg staða landsins sé mikilvæg með tilliti til öryggis- og varnarmála. Hann nefnir þá einnig að það geti verið stór ábati fyrir ímynd ESB að velmegandi land vilji ganga inn í sambandið. „Íslandi vegnar þegar vel. Sú staðreynd að Ísland gæti viljað ganga í sambandið, eftir úrslitum atkvæðagreiðslunnar, gæti reynst fjöður í hatt Brussels. Það lætur ESB líklega líða betur með sjálft sig,“ segir hann meðal annars. Á meðan Trump lýsir sambandinu sem hnignandi og fjarhægri flokkar á Evrópuþingi hafa lagst gegn stækkunaráformum, sem flest snúa að fátækari löndum álfunnar, gætu þeir þurft að éta hattinn sinn ef Ísland, sem yrði líklegast nettógreiðandi, kemur inn í sambandið. Evrópumenn viti þó að þeir geti ekki gengið að því vísu að Íslendingar vilji ganga inn.
Hlaðvarp Vísis Vísir að viðræðum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Tengdar fréttir Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Tveir ungir vinstrimenn tókust á í Vísi að viðræðum um það hvort Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ungur VG-liði hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins en ungur jafnaðarmaður segir ESB hafa gert margt til að tryggja réttindi vinnandi fólks. Þeir segjast þó bera virðingu fyrir sjónarmiðum hvor annars; enginn sé að vinna fjallkonunni nokkurt mein. 28. ágúst 2026 08:00 Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“. 27. ágúst 2026 23:12 Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum „Við sjáum ekki undir hvaða kringumstæðum hægt er að fá ítarlegri sérlausn en Finnar,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamataka, í nýjasta þætti Vísis að viðræðum. Hún telur einu leiðina til þess að íslenskir bændur geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð innan Evrópusambandsins sé með undanþágu frá allri landbúnaðarstefnu ESB, sem sé vægast sagt hæpið. 26. ágúst 2026 14:41 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Tveir ungir vinstrimenn tókust á í Vísi að viðræðum um það hvort Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ungur VG-liði hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins en ungur jafnaðarmaður segir ESB hafa gert margt til að tryggja réttindi vinnandi fólks. Þeir segjast þó bera virðingu fyrir sjónarmiðum hvor annars; enginn sé að vinna fjallkonunni nokkurt mein. 28. ágúst 2026 08:00
Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“. 27. ágúst 2026 23:12
Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum „Við sjáum ekki undir hvaða kringumstæðum hægt er að fá ítarlegri sérlausn en Finnar,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamataka, í nýjasta þætti Vísis að viðræðum. Hún telur einu leiðina til þess að íslenskir bændur geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð innan Evrópusambandsins sé með undanþágu frá allri landbúnaðarstefnu ESB, sem sé vægast sagt hæpið. 26. ágúst 2026 14:41