Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar 29. ágúst 2026 12:02 Í dag á sjálfan Höfuðdaginn sjálfan fær íslenska þjóðin dauðafæri fyrir opnu marki til að segja valda- og auðklíkunni sem öllu vill ráða hér á landi og hafa afskipti af í skjóli auðs, valds, einokunar og kúgunar, upp störfum, aftengja áhrif hennar og ráða sinni för sjálf án þeirra afskipta. Þjóðinni er í raun haldið í gíslingu af framangreindri klíku valds, verðtryggingar, hárra vaxta, spillingar, fákeppni og frændhygli. Bjartur í Sumarhúsum, sá mikli bóndadurgur og afglapi er Nóbelsskáldið skapaði og ritaði um stundaði kotbúskap í heiðarbýli við illan leik. Hann gekk svo langt að svelta konuna sína og börn og vildi enga hjálp því hann vildi vera sjálfstæður. Bjartur sagðist heldur ekki borga skuldir óreiðumanna. Það er nokkuð kunnuglegur tónn í umræðunni um Evrópumálin undanfarnar vikur og rímar við það að Íslendingar þurfi að greiða fyrir aðrar þjóðir, gangi landið í ESB. Ævi Bjarts var vægast sagt nöturleg og endaði illa í bókinni. Samt lifir hugsunar- og heimóttarháttur Bjarts enn góðu lífi meðal sumra Íslendinga enn þann dag í dag.Önnur skáldsagnapersóna kemur mér til hugar í dag. Það er Bör Börsson jr. úr samnefndum bókum eftir norska rithöfundinn Johan Falkberget. Bör Börsson gat stundum verið klókur en hann hagnaðist yfirleitt á því að glópalánið elti hann. Í dag mun sem stoltur Íslendingur kjósa JÁ og rökin eru eftirfarandi: 1. Ísland á allt sitt undir því að stórþjóðir virði sameiginlegar leikreglur á alþjóða vettvangi. 2. Ef viðunandi samningur myndi nást við ESB opnar það á upptöku evru. Það gæti orðið einhver mesta kjarabót fyrir almenning hér á landi í langan tíma. Lægri vextir, stöðugur gjaldmiðill og verðmætur gjaldmiðill. Vaxtakostnaður almennings, ríkis, sveitarfélaga og lögaðila myndi lækka gífurlega og tugir milljarða sparast. 3. Ég vill sjá alvöru samkeppni á matvörumarkaði, markaði banka, tryggingafélaga og í annarri þjónustu við almenning. 4. Svo er það geopólitíkin sem fólk verður að líta til. Gefum okkur að Norðmenn hætti í EES samningnum þar sem þeir borga 95% af öllum aðildargjöldum og, annar hvort ganga í ESB eða gera tvíhliða samning við ESB líkt og Sviss er með, þá er EES samningnum sjálfhætt. Þess vegna væri það algjört glapræði að loka hurðinni á ESB í dag. 5. Það verður aumt fyrir Íslendinga ef niðurstaðan í dag verður NEI og þurfa svo að koma skríðandi til ESB og sækja um aðild eða önnur úrræði þegar og ef Norðmenn gefast upp á EES samningnum og ganga í ESB, eða gera tvíhliða samning við ESB. En kjarninn er þessi. ESB er ekki fullkomið, hefur aldrei verið fullkomið og mun aldrei verða fullkomið. En það er mun betra heldur en að öll landamæri séu lokuð og tollamúrar úti um allt. Slíkt leiðir til deilna milli ríkja sem geta endað með stríðsátökum. Evrópa hefur séð nóg af þeim í gegnum aldirnar eða síðustu 2000 árin eða svo. Evrópusambandið og forveri þess, Evrópubandalagið byggðist upp í kringum gamla Kola og Stálbandalagið, en bandalaginu var ætlað að tryggja tollfrjáls viðskipti milli stofnríkja þess og enn fremur að tryggja og treysta frið milli Frakklands og vestur Þýzkalands eftir síðari heimsstyrjöld. Ekki er heldur unnt að líta fram hjá þeirri staðreynd að Evrópusamstarfið hefur tryggt frið í vestur Evrópu í 81 ár. Það er lengsta friðartímabil í álfunni síðan á tímum Rómverja fyrir um 2000 árum en þá ríkti um 200 ára friðartímabil sem nefnist Pax Romana og stóð frá 27 árum fyrir Krist til ársins 180 eftir Krist. En hvað sem því líður þá lifa þeim Bör Börsson og Bjartur í Sumarhúsum góðu lífi meðal þjóðarinnar. Bjartur myndi stoltur kjósa NEI í dag enda sjálfstæður einangrunarsinni. Bör Börsson myndi kjósa eftir því hvernig hann myndi græða sem mest á atkvæði sínu og gildir þá einu um hvorn kostinn hann kysi, bara svo fremi sem hann græddi. Ég vill ekki vera eins og Bjartur í Sumarhúsum á nokkurn einasta hátt. Þess vegna mun ég kjósa JÁ fyrir mig, börnin mín og komandi kynslóðir sem erfa munu landið okkar. Höfundur er lögfræðingur, faðir og annt um mannréttindi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar