Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Birgir Olgeirsson skrifar 31. ágúst 2026 14:14 Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Ívar Ekki er ástæða til að lesa of mikið í samdrátt landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi, að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Hagkerfið sé enn í hægum vexti og fjárfesting í gagnaverum muni skila auknum útflutningstekjum síðar.
Landsframleiðsla dróst saman um 1,1 prósent að raunvirði á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir árstíðasveiflum nam samdrátturinn þremur prósentum frá fyrsta ársfjórðungi. Fyrstu sex mánuði ársins jókst landsframleiðslan hins vegar um 1,3 prósent. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir ársfjórðungstölur þjóðhagsreikninga sveiflukenndar. Hagstofan hafi jafnframt endurskoðað tölurnar fyrir fyrsta ársfjórðung upp á við. „Í svona kvikum tölum og sveiflukenndum eins og þjóðhagsreikningar eru á ársfjórðungsgrunni hjá Hagstofunni þá er gagnlegra að horfa á fyrri helming ársins í heild og hann lítur ekkert sérlega illa út.“ Þjóðarútgjöld jukust um 1,6 prósent á öðrum ársfjórðungi, einkaneysla um 0,8 prósent og fjármunamyndun um 5,7 prósent. Jón Bjarki segir því enn vera vöxt í innlendri eftirspurn, neyslu og fjárfestingu. „Ef það er tekið út fyrir sviga þá er stóra myndin eiginlega sú að við erum með hagkerfi í hægum vexti en ekki beinum samdrætti.“ Minna flutt út en hærra verð fæst fyrir vörurnar Samdrátturinn skýrist fyrst og fremst af neikvæðu framlagi utanríkisviðskipta. Halli á vöru- og þjónustuviðskiptum nam 87,8 milljörðum króna á ársfjórðungnum, samanborið við 66,2 milljarða á sama tíma í fyrra. Vöruviðskiptin ein og sér drógu hagvöxt niður um 2,9 prósentustig. Jón Bjarki segir samdrátt í vöruútflutningi að verulegu leyti eiga sér tímabundnar skýringar. Bilun í álverinu á Grundartanga hafi haft áhrif fram á mitt ár. Þá gæti enn áhrifa af lokun PCC og framleiðslusamdrætti í kísilmálmverksmiðjunni á Grundartanga. Útflutningur sjávarafurða hafi einnig minnkað að magni. Hagstæð verðþróun hafi þó vegið á móti og haldið útflutningstekjum uppi. „Þó að kílóin séu færri sem flutt eru út, þá fæst hærra verð fyrir vörurnar.“ Gagnaverin vega þungt Fjárfesting í gagnaverum vegur þungt í tölunum. Hún kemur fram sem aukin atvinnuvegafjárfesting en kallar jafnframt á mikinn innflutning á búnaði, sem eykur vöruskiptahallann. Jón Bjarki segir slíkan innflutning minna áhyggjuefni en innflutning sem tengist neyslu. „Sér í lagi þegar er verið að flytja inn fjárfestingarvöru til að afla útflutningstekna, þá erum við að tala meira um tilfærslu milli tímabila.“ Gagnaverin skili nú þegar töluvert meiri útflutningstekjum en fyrir nokkrum misserum. Sú þróun muni halda áfram þar sem uppbygging í greininni sé enn í fullum gangi. Íslandsbanki spáði í júní 1,3 prósenta hagvexti á árinu. Það er sama hlutfall og hagvöxturinn mældist á fyrri helmingi ársins og Jón Bjarki segir nýju tölurnar ekki breyta þeirri sýn. „Enn sem áður sýnist okkur að niðurstaðan fyrir árið í heild verði hægur vöxtur. Þetta er hagkerfi sem er að kólna jafnt og þétt, en það er ekki kreppa,“ segir Jón Bjarki Bentsson.
Efnahagsmál Gagnaver Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira