Þjóðin kom saman og byggði Kvennaathvarf – Takk! Esther Hallsdóttir skrifar 3. september 2026 07:30 Í Reykjavík og á Akureyri eru rekin tvö heimili sem helst ættu ekki að vera til. Þar ríkir þó einstakur andi. Þar er haldið upp á alla mögulega hátíðisdaga með ilmandi bakstri úr eldhúsinu, búningar dregnir fram bæði á öskudaginn og á hrekkjavöku, og öll tækifæri nýtt til að vekja gleði mitt í erfiðum kringumstæðum. Þessi heimili taka opnum örmum konum og börnum sem flýja heimili sín vegna ofbeldis. Þar fá konur tækifæri til að ná áttum, fá leiðsögn, og byggja sig upp fyrir sín næstu skref. Börn fá skjól og finna nýtt öryggi. Þetta er Kvennaathvarfið. Nú eru tímamót í 44 ára sögu Samtaka um kvennaathvarf, því í dag opnum við nýtt Kvennaathvarf í Reykjavík, þangað sem við munum flytja í september. Þetta er í fyrsta sinn sem húsnæði hefur verið byggt sérstaklega fyrir Kvennaathvarfið og hannað með þarfir kvenna og barna sem þar dvelja í huga. Það er einstakt á alþjóðavísu. Nýja húsnæðið mun gera okkur kleift að taka enn betur utan um konur og börn – þar er nægt pláss, aðgengi fyrir alla, frábær aðstaða fyrir börn að leika sér bæði inni og úti, og gott rými fyrir viðtalsþjónustu. Þó að okkur hafi alltaf tekist, með mikilli lagni og útsjónarsemi starfskvenna athvarfsins, að koma öllum sem til okkar leita fyrir í núverandi húsnæði (enda er aldrei fullt í Kvennaathvarfinu) þá hlökkum við mikið til þess nýja. Og húsið er strax tekið að fyllast þeirri hlýju sem einkennir Kvennaathvarfið hvar sem það er til húsa. Sannarlega hefði ég viljað af öllu hjarta að athvarfið hefði þurft að minnka við sig frekar en að stækka, því að ofbeldi í nánum samböndum væri á undanhaldi í okkar samfélagi. En þangað til svo verður stöndum við vaktina. Núna í sumar vorum við enn og aftur minntar á þörfina, því aðsóknin hefur verið mikil – þegar mest var í lok júlí voru 15 konur og 10 börn í húsi. Samstaða sem færir fjöll En það er ekki sjálfsagt að frjáls félagasamtök eins og okkar geti staðið undir verkefni af þessari stærðargráðu. Það sem gerði þetta mögulegt var óviðjafnanlegur stuðningur íslensku þjóðarinnar. Þrír framsæknir frumkvöðlar sem settu á fót stóra sjónvarpssöfnun og seldu gloss um allt land; kvennahópar og ýmiss félagskapur fólks sem tók sig saman; fyrirtæki sem gáfu efnivið og innréttingar; dugmiklar konur sem buðu sig fram í garðvinnu, sjálfboðaliðar sem selja föt á Seltjarnarnesi, einstaklingar sem gáfu tíma sinn og framlög, og svo mætti lengi áfram telja. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef orðið orðlaus yfir örlæti fólks gagnvart Kvennaathvarfinu síðustu árin. Og núna síðast hefur prjónafólk landsins tekið sig saman og safnað yfir 30 milljónum fyrir Kvennaathvarfið með því að prjóna peysuna Skjól. Þvílíkur kraftur! Fólkið sem hefur staðið á vaktina á verkstað á ekki síður þakkir skyldar; arkitekt hússins, verkefnastjóri, verktakar, byggingastjórn og aðrir sem hafa komið að verkinu hafa reynst athvarfinu afskaplega vel. Fyrri stjórnir höfðu áræðni til að ráðast í þetta verkefni og lögðu grunninn að því, og ekki er hægt að sleppa því að minnast á starfskonur athvarfsins sem eru mikill auður, því þær standa eins og klettir við bakið á konunum og börnunum sem til okkar leita og skapa það hlýja andrúmsloft sem er í athvarfinu. En þessi áfangi er ekki síst fyrir tilstilli þeirra kvenna sem ruddu veginn – sem komu saman þvert á alla flokkadrætti og stofnuðu Kvennaathvarf á tímum þegar slíkt krafðist þess að fara á móti straumnum. Kvenna sem höfðu hyggjuvit til að koma málum svo fyrir að Kvennaathvarfið eignaðist sitt eigið húsnæði, sem er undirstaða starfseminnar til þessa dags. Ég er stolt af því að fá tækifæri til þess að taka þátt í þessu næsta skrefi, með starfsfólki athvarfsins og öllum þeim fjölmörgu sem hafa gert þetta að veruleika. En ég er ekki síður stolt af því að tilheyra samfélagi sem lætur sig ofbeldi gegn konum og börnum varða og dregur skýra línu í sandinn með einstökum stuðningi við verkefni eins og þetta. Takk, þið öll. Takk! Höfundur er formaður stjórnar Kvennaathvarfsins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kvennaathvarfið Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar