Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar 4. september 2026 06:00 Hver þjóð á sér sína þjóðverja. Íslendingar eru þjóðverjar Íslands, Frakkar þjóðverjar Frakklands og Japanir þjóðverjar Japans — því orðið þýðir ekkert annað en „sá sem er af þjóðinni". Samt hefur ein þjóð, og aðeins ein, eignað sér þetta almenna orð og haldið því í tæpar tvær aldir. Það eru íbúar Þýskalands. Hvernig stendur á því? Sagan er eldri og flóknari en einföld tökuþýðing. Orðin „þjóð“, „þýskur“ og „deutsch“ eru öll af sama meiði. Þau eru rakin til forngermanskrar rótar, þeudō, sem merkti fólk eða þjóð. Orðin „þjóð“ og „deutsch“ eru því ekki frumtexti og þýðing heldur frændur af sömu rót. Nútímamyndin „Þjóðverji“ kemur hins vegar ekki fram í Ritmálssafni Árnastofnunar fyrr en um miðja 19. öld. Hún er ekki dregin af landsheitinu Þýskalandi, eins og Íslendingur af Íslandi eða Englendingur af Englandi, heldur ber hið almenna orð „þjóð“ sjálft í fyrri lið. Hinn forni skyldleiki hefur þannig orðið næstum bókstaflegur. Fallega gert, en utan við hið venjulega kerfi þjóðaheita. Og heitið er ekki einu sinni það fyrsta. Að fornu var þetta sama fólk oft kallað Suðurmenn. Lýsingarorðið og tungumálaheitið gengu um í myndum á borð við „þýðverskur“, „þýverskur“ og „þýðeskur“; dæmi um „þýðesku“ er varðveitt í handriti frá um 1200. Hefðin sem nú ver Þjóðverjann er því sjálf arftaki eldri hefða sem viku. Þjóðaheiti hafa skipt um ham áður í þessu máli, og heimurinn hélt áfram að snúast. Ég sendi því málfarsráðgjöf Árnastofnunar erindi og spurði blátt áfram: Er orðmyndunin „Þýsklendingur“: Þýskaland + -ingur, líkt og Íslendingur, tæk og rétt mynduð? Svarið barst um hæl og var afdráttarlaust: Orðið er rétt myndað og ætti einmitt að vera með brottfalli, Þýsklendingur en ekki Þýskalendingur. En, bætti stofnunin við, Þjóðverji hefur unnið sér hefð og er sjálft rétt myndað, ólíkt Mexíkana, sem samræmist ekki íslenskri orðmyndun með sama hætti. Árnastofnun mælir því ekki með því að annað heiti verði tekið upp í stað Þjóðverja. Hún tók þó fram að heimildir um ýmis önnur ríkja- og þjóðaheiti væru mun rýrari og þar mætti ef til vill hafa önnur heiti. Takið eftir því sem hér skiptir máli. Þýsklendingnum er ekki hafnað vegna þess að hann sé rangt myndaður eða óíslenskulegur. Honum er hafnað vegna þess að annað rétt myndað orð kom á undan og vann sér hefð. Hefðin er hér ekki rök um orðmyndun heldur úrslitavald um málfarsráðleggingu. Það má vel una því. En þá skulum við líka kalla hlutina sínum réttu nöfnum: Þýsklendingurinn er ekki bannaður, honum er bara ekki boðið. Því Þýsklendingurinn á sér nefnilega sögu. Í Ritmálssafni Árnastofnunar leynist eitt dæmi um Þýsklending, og það er ekki úr hvaða riti sem er: úr ófullgerðu uppkasti að Ferðabók Tómasar Sæmundssonar, Fjölnismanns. Drögin voru samin eftir Evrópuferð hans á árunum 1832–1834, þótt bókin kæmi ekki út fyrr en 1947. Elsta tölvutæka dæmi safnsins um Þjóðverja er frá 1845. Með eðlilegum fyrirvara um gloppur í varðveislu gæti Þýsklendingurinn því hafa mætt á ráslínuna áður en keppinauturinn vann sér hefðina. Þetta er ekki nýyrðasmíð heldur endurheimt: við tökum upp þráð sem Tómas lagði frá sér fyrir tæpum tveimur öldum. Og hvað er þá til ráða, fyrst Árnastofnun ætlar ekki að leiða orðið til sætis? Nú, það sem alltaf hefur dugað íslenskunni best: málnotkun. Að fyrirsögninni meðtalinni hafið þið nú lesið orðið átta sinnum í þessari grein án þess að hnjóta. Það brýtur enga reglu, skilst samstundis og þarf hvorki reglugerð né ráðherrabréf til að ganga laust. Íslenskan er ekki safngripur heldur verkfæri, og orðmyndunarkerfið heldur aðeins velli sé það notað, reynt og teygt. Ég fer ekki fram á að Þjóðverjinn verði felldur. Hann má standa, gamall og gróinn, eins og torfbær í túnjaðri. Ég fer aðeins fram á að Þýsklendingurinn — rétt myndaður að mati Árnastofnunar, með Fjölnismann að guðföður — fái að ganga um frjáls. Hver þjóð á sér sína þjóðverja. En í Þýskalandi búa Þýsklendingar. Höfundur er umhverfisverkfræðingur og áhugamaður um íslenskt mál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar