„Fólk er bara slegið“ Smári Jökull Jónsson skrifar 9. september 2026 13:10 Leikskólabörn að leik. Vísir/Vilhelm Leikskólakennarar eru alvöru kennarar segir formaður svæðadeildar leikskólakennara í Reykjavík og segir fólk í stéttinni slegið yfir orðum barna- og menntamálaráðherra í gær. Þá segir hún að breyta þurfi því viðhorfi að gott sé að fara að vinna í leikskóla til að læra íslensku.
Niðurstöður nýjustu PISA-könnunarinnar voru birtar í gær og hefur árangur íslenskra nemenda aldrei verið í jafn slæmur. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra ræddi útkomuna í Reykjavík síðdegis í gær og talaði þar meðal annars um leikskólana og sagði að taka þyrfti utan um börnin fyrr. „Það eru rosalegar áskoranir sem mæta okkur í leikskólanum þar sem stór hluti af þeim sem eru að sinna börnunum okkar tala ekki íslensku. Þetta er á viðkvæmum tíma sem börnin okkar eru að læra tungumálið,“ sagði Inga meðal annars í Reykjavík síðdegis í gær. Linda Ósk Sigurðardóttir formaður svæðadeildar leikskólakennara í Reykjavík segir þó að á leikskólunum starfi mjög gott erlent starfsfólk þá séu orð ráðherra rétt. Inga Sæland sagði að miklar áskoranir væru í leikskólamálum og sagði of marga starfsmenn þar ekki tala íslensku.Vísir/Anton Brink „Það hefur verið litið svolítið á það þannig í gegnum tíðina að það sé gott að fara að starfa á leikskóla til að læra íslensku. Sem er náttúrulega alls ekki vegna þess að við erum að vinna með börn og leggjum mikla áherslu á málþroska í leikskólanum,“ sagði Linda í hádegisfréttum Bylgjunnar. Fjölgar í leikskólakennaranámi Hún segir að fjölgað hafi í hópi þeirra sem sækja um leikskólakennaranám sem sé jákvætt. Menntaðir kennarar haldi leikskólunum uppi og séu þeir sem haldist lengst í starfi. „Í Reykjavík hefur verið unnið mjög ákveðið að því að fjölga leikskólakennurum. Það höfum við til dæmis gert með því að hvetja starfsfólkið hjá okkur til að sækja um nám og þau hafa þá fengið nokkurs konar námsleyfi. „Hér á mínum leikskóla erum við með nokkra sem eru að fara í mastersnám sem eru með aðra háskólamenntun.“ „Við erum alvöru kennarar“ En það voru önnur orð Ingu um leikskólakennaranámið sem hafa farið fyrir brjóstið á leikskólakennurum. „Það vantar meiri hvata til að fá fleiri til að læra. Komið þið með, lærið að verða leikskólakennarar og alvöru kennarar og takið utan um börnin með okkur,“ sagði Inga á Bylgjunni í gær. Linda segir að hún myndi vilja að ráðherra talaði af virðingu um sitt starf og að reglulega hafi verið rætt að tala þurfi leikskólann upp. Þessi orð geri það ekki. „Fólk er bara slegið af því að svona eigum við ekki að tala um starfstéttir. Við eigum ekki að vera að gera minna úr starfstéttinni okkar þó svo að við kennum minna fólki, litla fólkinu. Við erum alvöru kennarar.“
Skóla- og menntamál Leikskólar PISA-könnun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira