Viðskipti innlent

Opna nýtt kaffi­hús í Lista­safni Reykja­víkur

Lovísa Arnardóttir skrifar
René Boonekamp frá Hafnar.Haus, Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og Tom Byrne rekstrarstjóri Kaffi H.
René Boonekamp frá Hafnar.Haus, Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og Tom Byrne rekstrarstjóri Kaffi H. Aðsend

Listasafn Reykjavíkur og Hafnar.Haus opna saman kaffihúsið Kaffi H í Hafnarhúsi. Í tilkynningu segir að kaffihúsið verði á annarri hæð safnsins við Tryggvagötu. 

Þar verði hægt að fá kaffi og staðgóðan hádegisverð. Þá verði einnig á fimmtudögum, þegar safnið er opið til klukkan 22, barþjónusta og lifandi menningardagskrá.

„Markmiðið er að gera Hafnarhúsið að stað sem ungt og skapandi fólk sækir ekki aðeins til að skoða sýningar, heldur einnig til að hittast, njóta matar og drykkjar, vinna, tengjast öðrum og upplifa menningu frá morgni til kvölds,“ segir í tilkynningu um opnun kaffihússins.

Þar segir að með þessu samstarfi vilji þau styrkja Hafnarhúsið og taka betur á móti þeim fjölda ferðamanna sem komi á safnið.

Hafnar.Haus er sjálfseignarstofnun og samfélag sem styður við skapandi fólk með því að bjóða hagkvæmt húsnæði, sameiginlega aðstöðu, tækifæri til samstarfs og vettvang þar sem fólk úr ólíkum skapandi greinum getur hist, tengst og miðlað hugmyndum.


Tengdar fréttir

Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi

Í Hafnarhausi, skapandi miðstöð í miðbæ Reykjavíkur, hafa foreldrar fjögurra ungbarna sem bíða eftir leikskólaplássi fyrir börn sín tekið sig saman og skiptast á að gæta barnanna. Ein skipuleggjenda segir til skoðunar að gera úrræðið varanlegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×