Viðskipti innlent

Bundu nær allan kol­tví­sýring og brenni­stein á Hellis­heiði

Kjartan Kjartansson skrifar
Steingerður er samstarfsverkefni Orku náttúrunnar og Carbfix um að fanga og binda kolefni og brennistein frá Hellisheiðarvirkjun.
Steingerður er samstarfsverkefni Orku náttúrunnar og Carbfix um að fanga og binda kolefni og brennistein frá Hellisheiðarvirkjun. Carbfix

Lofthreinsistöð Carbix hefur bundið svo gott sem allan koltvísýring og brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun síðasta árið. Fyrirtækið segist nú hafa bundið rúmlega 120 þúsund tonn af koltvísýringi í berg frá því að tæknin var tekin í notkun.

Bæði koltvísýringur og brennisteinsvetni losnað við vinnslu á jarðvarma. Fyrrnefnda lofttegundin eykur gróðurhúsaáhrif lofthjúpsins og stuðlar að hnattrænni hlýnun en sú síðarnefnda getur haft áhrif á loftgæði.

Síðasta árið, frá byrjun júlí 2025 til 30. júní í ár, batt Steingerður, lofthreinsistöðin við Hellisheiðarvirkjun, 99,6 prósent þess koltvísýrings og brennisteinsvetni sem barst inn í föngunarkerfið hennar samkvæmt nýjustu rekstrarniðurstöðum hennar.

Lofttegundirnar eru leystar upp í vatni og dælt ofan í jörðu þar sem þær bindast varanlega í berggrunninum með aðferð sem Carbix, dótturfélag Orkuveitunnar þróaði á Hellisheiði.

Magnið af koltvísýringi sem hefur verið bundið með Carbfix-aðferðinni á Hellisheiðinni nemur nú rúmlega helmingi losunar allra jarðvarmavirkjana á Íslandi árið 2024. Auk þess hafa rúmlega 55 þúsund tonn af brennisteinsvetni verið bundin í jörð samkvæmt tilkynningu Carbfix.

Nýsköpunarsjóður Evrópusambandsins styrkti Silfubergsverkefni Orku náttúrunnar og Carbfix um tæpar 3,9 milljónir evra en Steingerður er sögð lykilþáttur í því.

Þurfa að fanga og binda kolefni til þess að ná tökum á loftslagsvá

Skýrsla Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem var birt í síðustu viku gerði ljóst að útséð væri um að menn næðu metnaðarfyllra markmiði Parísarsamkomulagsins um að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5°C á þessari öld. 

Gera þyrfti ráð fyrir að farið yrði yfir þau mörk og að mannkynið þyrfti að þróa leiðir til þess að fanga og binda kolefni úr lofti til þess að koma loftslagi jarðar aftur inn fyrir þolanleg mörk.

Carbfix hefur einnig átt í samstarfi við svissneska nýsköpunarfyrirtækið Climeworks sem þróar tækni við að fanga koltvísýring beint úr lofti á Hellisheiði. Sú tækni er þó skammt á veg komin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×