Fékk nóg og er hættur á Facebook Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. september 2026 16:25 Jón Frímann er einn þekktasti borgaralegi vísindamaður landsins, hann hefur fengið nóg af Meta. Jón Frímann Jónsson sem haslað hefur sér völl með skeleggum skrifum um jarðhræringar á samfélagsmiðlinum Facebook hefur ákveðið að segja skilið við miðilinn. Hann segir fréttir af gervigreind og auglýsingasölu fyrirtækisins þar sem kynferðisofbeldi gegn börnum bregði fyrir sé um að kenna. Jón vonar að lesendur muni fylgja honum yfir á nýja samfélagsmiðla. „
Mér fannst bara vera kominn tími á þetta. Meta fyrirtækið að baki Facebook er í raun orðið alveg stjórnlaust, það tekur nákvæmlega enga ábyrgð á neinu,“ segir Jón Frímann í samtali við Vísi. Hann hefur verið einkar duglegur við að fjalla um jarðhræringar, meðal annars á Reykjanesi, á Facebook undanfarin ár. Svo mikla athygli hafa skrif hans vakið að fullyrt hefur verið í Víkurfréttum að hann sé bæði elskaður og hataður fyrir skrif sín en Jón Frímann býr á Hvammstanga og hefur haft áhuga á jarðvísindum frá þrettán ára aldri. Hann hefur lýst sér sem borgaralegum vísindamanni í faginu. „Ef maður skoðar erlendar fréttir af rannsóknum erlendra blaðamanna þá kemur í ljós að ástandið á Meta er þannig að mér finnst ekki vera forsvaranlegt fyrir mig að vera þarna lengur,“ segir Jón Frímann. Hann segir fréttir af því að fyrirtækið hafi neitað að fjarlæga auglýsingar sem innihéldu barnaklámsefni búið til af gervigreind vera það sem hafi ýtt honum af brúninni. Vísar hann þar meðal annars til fréttar breska ríkisútvarpsins af því að Meta hafi birt hundruð greiddra auglýsinga með gervigreindarmyndum af kynferðisofbeldi gegn börnum, þar á meðal nokkrar á Indlandi, á síðustu tíu mánuðum, samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var af bandarískum mannréttindasamtökum. Fyrirtækið hefur sagt að um að kenna bíræfnum aðilum sem komist framhjá síum fyrirtækisins. Tveir mánuðir eru síðan að BBC Eye greindi frá því að Instagram hefðu birt slíkt efni og að indversk stjórnvöld hefðu fyrirskipað Meta að fjarlæga allar auglýsingar og efni sem kynnti efni um kynferðisofbeldi gegn börnum. „Fyrir utan allt þetta þá eru þeir að nota gervigreindina til að búa til einhverskonar mynd af manni, ég er ekkert voðalega hrifinn af því,“ segir Jón Frímann sem segir nítján ár að baki á miðlinum. Það muni því taka sinn tíma að venjast því að vera ekki á honum. „En ég mun halda áfram að fylgjast með jarðhræringunum og er að reyna að beina fólki inn á Mastodon og síðan Bluesky. Þar ætla ég að halda áfram að skrifa færslur og fólk getur skilið eftir spurningar þar inni. Mastodon er svona opin útgáfa af samfélagsmiðlum, Bluesky er síðan fyrirtæki í Bandaríkjunum en þeir eru ekki með neitt svona gervigreindardót.“ Árið í ár hafi þó verið rólegt, enda meira en ár síðan gaus síðast á Reykjanesi. „Árið 2026 er bara búið að vera mjög rólegt, fyrir utan eitt eldgos sem Bárðarbunga reyndi að setja af stað en tókst ekki.“ Hann segist hafa fengið mikil viðbrögð við ákvörðuninni um að hætta. Fjöldi fólks ritar athugasemdir undir færslu hans inni á Facebook hópnum: Jarðfræði á Íslandi, virkni, framtíð og fortíð. „Fólk virðist vera mjög hissa á þessu, ég sá einhverja könnun fyrir einhverjum árum síðan um að níutíu prósent Íslendinga væru á Facebook. Ég veit nú ekki hvernig talan er í dag en þetta er svo stór hluti af lífinu hjá morgun, sem eru ekki á því að stimpla sig svona út, en ég held að þetta sé rétt ákvörðun hjá mér.“
Meta Samfélagsmiðlar Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira