Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 14. september 2026 12:47 Ég er borgarbarn frá blautu barnsbeini. Ólst þar af leiðandi ekki upp við sauðfjárbúskap og því fjarri mér að segja bændum hvernig þeir ættu að reka bú sín. Á hverju hausti sé ég hins vegar myndir og myndskeið frá réttum sem mér finnst einfaldlega erfitt að horfa á. Sauðfé í miklum troðningi og hávaða og dýrir greinilega hrædd. Gripið er í horn þeirra, togað í þau og þau dregin fram og til baka. Kannski sér vant sveitafólk eitthvað allt annað en ég. En stundum horfi ég á þetta og hugsa: Veslings skepnurnar. Þarf þetta virkilega að vera svona? Gömul hefð en nýjar kröfur Ég veit vel að réttir eiga sér langa sögu. Þær eru hluti af íslenskum landbúnaði og menningu til sveita. Fyrir marga eru réttir einnig stór félagslegur viðburður eftir að fé hefur verið smalað af fjalli. Ég er ekki að leggja til að réttir verði aflagðar. En hefðir og venjur geta varla einar og sér ráðið því hvernig við umgöngumst dýr. Í dag eru gerðar meiri kröfur til velferðar dýra og meira gætt að líðan skepnanna. Það á líka við þegar kemur að hefðum sem okkur þykir vænt um. Dýr eru skyni gæddar verur Í lögum kemur skýrt fram að markmiðið sé meðal annars að dýr séu laus við vanlíðan, ótta, þjáningu, sársauka og meiðsli. Þar er sérstaklega tekið fram að dýr séu skyni gæddar verur. Þegar búfé er rekið segir jafnframt að gæta skuli þess að dýrin verði fyrir sem minnstu álagi og að hvorki þoli þeirra né kröftum sé ofboðið. Þetta eru ekki orð einhverra viðkvæmra borgarbúa. Þetta eru kröfur sem við höfum sjálf sett í lög. Matvælastofnun hefur fjallað sérstaklega um velferð sauðfjár í göngum og réttum. Stofnunin bendir á að mikill atgangur geti orðið þegar fé er rekið inn í almenning og kindurnar handsamaðar. Þá þurfi fullorðnir að vera börnum góð fyrirmynd og fara vel að fénu. MAST segir einnig að við drátt eigi að forðast að taka utarlega í horn kindanna vegna hættu á að þau brotni. Þá eigi að varast að hanga eða toga kröftuglega í ullina því það geti valdið blæðingum undir húð. Þetta eru mikilvægar ábendingar. Þegar myndir sýna skelkað fé sem dregið er áfram á hornunum er ekki nóg að segja við borgarbörnin að svona hafi þetta alltaf verið. Við hljótum að mega spyrja hvort hægt sé að gera betur. Hvort sumt af því sem við sjáum sé yfirleitt í lagi. Ekki bændur gegn borgarbörnum Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að yfirgnæfandi meirihluti bænda beri mikla umhyggju fyrir skepnunum sínum. Þeir þekkja þær og þarfir þeirra miklu betur en ég. Getum við aftur á móti haldið í þessa gömlu hefð en um leið dregið úr ótta, troðningi og harkalegri meðferð dýranna í réttum? Getum við gert skýrari kröfur um hvernig fé er meðhöndlað? Getum við kennt börnum og óvönu fólki sem tekur þátt í réttum hvernig á að bera sig að? Getum við ekki einfaldlega hætt þeim handtökum sem geta valdið dýrunum sársauka eða meiðslum? Umfram allt, getum við gert þetta án þess að skepnurnar þurfi að upplifa svona mikla angist? Þær eru sýnilega skelfingu lostnar. Setjum okkur í þeirra spor Réttirnar þurfa ekki að hverfa þótt við spyrjum þessara spurninga. Hefðir geta breyst. Þær hafa gert það alla tíð. Við ættum að geta notið stemningarinnar, samverunnar og hefðarinnar en um leið munað eftir skepnunni sem stendur í miðjum látunum og skilur ekkert í því sem er að gerast. Við eigum að vera góð við öll dýr, hvar sem er og hvenær sem er. Kannski þurfum við einfaldlega stundum að setja okkur í spor sauðkindarinnar. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun