Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Aron Guðmundsson skrifar 16. september 2026 10:54 Karla- og kvennalandslið Íslands í keilu héldu út til Írlands í morgun. Ekki fengu öll þau fríðindi að vera með aðgang að Saga Lounge og Saga Class Samsett mynd. Framkvæmdastjóri Keilusambands Íslands þvertekur fyrir að um kynjamisrétti hafi verið að ræða þegar að leikmenn í karlalandsliði Íslands fengu sæti í Saga Class á leið í landsliðsverkefni á Írlandi í morgun á meðan að leikmenn kvennalandsliðsins þurftu að sitja á almennu farrými. „
Útskýringin er einfaldlega sú að það var bara mjög erfitt að finna pláss í þessari flugvél,“ segir Þórarinn Már Þorbjörnsson, framkvæmda- og íþróttastjóri Keilusambands Íslands, í samtali við Vísi. „Það bara var svoleiðis og það er alls ekki verið að mismuna milli karla og kvenna. Það er bara ekki til í mínum huga.“ Vísi barst ábending í morgun þess efnis að í morgun á Keflavíkurflugvelli hafi komið í ljós að liðsmenn úr karlalandsliði Íslands sætu á Saga Class, með öllum þeim fríðindum sem því fylgja fyrir flug og meðan á því stendur, á meðan liðsmenn kvennalandsliðsins hafi fengið sæti á almennu farrými. Fram undan er mót á Írlandi og keppa tólf keppendur fyrir Íslands hönd og með í för eru þrír þjálfarar. Þórarinn Már, framkvæmda- og íþróttastjóri Keilusambands Íslands „Mér sárnar svona“ Samkvæmt ábendingunni hafi þetta skiljanlega ekki farið vel í liðsmenn kvennalandsliðsins sem hafi liðið eins og „annars flokks fólki“. Það ku samt ekki vera rétt að allir leikmenn karlalandsliðsins hafi verið á Saga Class. „Þegar verið er að fara í svona ferðir snýst þetta alltaf um hvar eru til miðar í flugvélinni. Þegar við ferðumst þurfum við alltaf að kaupa aukabúnað og aukatöskur og þess háttar. Þegar verið er að kaupa flugmiða þá verður maður alltaf að vega og meta hvar við fáum besta, hagstæðasta verðið, því að hver taska kostar sitt. Þetta snýst heldur ekki bara um karlalandsliðið vegna þess að stærsti hluti karlalandsliðsins flýgur frá Svíþjóð. Þannig að þetta eru örfáir einstaklingar.“ Búið hafi verið að kaupa alla flugmiða fyrir kvennalandsliðið löngu áður þar sem búið var að velja í liðið á undan karlalandsliðinu. „Þegar það svo gerist þá er bara uppselt í flugið nema á Saga Class og við erum að tala um tvo karlmenn af þremur. Það er ekki verið að mismuna eftir kynjum, það er bara ekki svoleiðis. Þetta er alls ekki, langt í frá, gert með þeim hætti að verið sé að mismuna fólki. Mér sárnar svona. Þetta er í fyrsta skipti sem ég lendi í því að það sé nánast uppselt í flug.“ Með sæti á Saga Class fylgi tvær innritaðar ferðatöskur. Það hafi verið tekið með í myndina því landsliðin í keilu ferðist með mikinn búnað á mót erlendis. Leiðinlegt sé að tal um mismunun milli kynja komi upp í þessu máli. „Því það er ekki okkar tilgangur að vera í einhverju slíku. Við fengum einn miða þarna aftar í vélinni. Sá miði er dýrari því hann var valinn aðeins seinna. Það datt einn liðsmaður út og annar gripinn inn í kjölfarið. Sá miði er dýrari heldur en sá sem var keyptur á Saga Class vegna þess að það var bara orðið nánast uppselt í vélina og Icelandair er ekkert að slá af verði þó að við séum íþróttafólk.“
Keila Keflavíkurflugvöllur Flug Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira