„Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar 17. september 2026 10:02 Ég heyrði í einum fjölmiðli í vikunni að það væri kallað eftir því að tónlistarmenn fari nú að safna í sig pung, hvort sem þeir gaufa hér heima eða glansa á alþjóðlegum vettvangi, og láti loksins almennilega til sín taka í pólitík og friðarmálum. Hugmyndin er stórkostleg: gítarleikarar og poppstjörnur eiga auðvitað að semja heiminn til friðar og bjarga jarðarkringlunni milli þess sem þeir selja varning og stilla magnarann. En á meðan menningarheimurinn leitar að kjarkinum situr raunveruleikinn eftir eins og illa gerð teiknimynd. Þar virðist fjórða valdið hafa gleymt sínu hlutverki og lætur innihaldslaus svör eins og „við ætlum að læra af þessu“ duga aftur og aftur, líkt og meðvirkur aðstandandi virks alkóhólista sem trúir enn einu sinni loforðinu um að í þetta sinn verði allt öðruvísi. Við elskum góða endurtekningu á Íslandi. Garðabær minnti okkur glæsilega á forgangsröðunina þegar sérhæft meðferðarheimili fyrir fársjúk ungmenni strandaði á smámunum eins og hundrað milljóna gatnagerðargjöldum. Þetta minnir óneitanlega á kvikmyndina Groundhog Day, þar sem sami fáránleikinn rúllar aftur og aftur í endalausum hring. Fársjúk börn í lífshættu komast einfaldlega ekki á blað þegar Excel-skjal bæjarins krefst þess að aurarnir fyrir steypuna og malbikið fái forgang fram yfir mannslíf. Svo má auðvitað ekki gleyma Farsældartúni, sem var opnað með pomp og prakt fjórum dögum fyrir kosningar en reyndist svo ekkert annað en ódýr leiktjöld fyrir atkvæðaveiðar. Þá var muldrað hið klassíska loforð um að læra af mistökunum, sem er kurteisleg leið til að segja að nákvæmlega sama klúðrið verði endurtekið síðar, bara með margföldum kostnaði fyrir skattgreiðendur. Og viti menn, Hafnarfjörður tók boltann. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði ákváðu að leysa lóðamál nýs Tækniskóla með því að greiða Haraldi Sverrissyni, fyrrverandi bæjarstjóra Mosfellsbæjar, að minnsta kosti 19 milljónir króna fyrir ráðgjöf og samningaviðræður. Hver er svo uppskeran af þessum dýrindis kaffibollafundum? Lóðirnar fást ekki. Verkefninu er frestað um tvö ár eða meira. Þetta er snilldarstjórnsýsla: að henda tugum milljóna í að semja um ekki neitt, smáaurar í hinu stóra bruðlsamhengi, á meðan framtíðaráform ungs fólks eru sett á algjört HOLD! Á meðan er um þúsund iðnnemum vísað frá á ári hverju vegna plássleysis. Ungt fólk sem vill læra að smíða, rafvæða eða halda innviðum landsins gangandi fær bara hlýtt bros og frestunarbréf. Framtíð þeirra er sett á ís og verðmætin sem tapast eru ómælanleg, en huggum okkur við að Haraldur fékk allavega sinn tékka. Hvar er svo ábyrgðin? Rósa Guðbjartsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og núverandi alþingismaður, hefur að sjálfsögðu siglt fagnandi inn á þing þar sem fólk fer til að gleyma gömlum reikningum. Þegar stjórnarmenn verkefnisins eru spurðir út í heildarkostnaðinn kemur hið þægilega heyrnarleysi og engin svör fást. Leyndarhyggjan er svo þykk að hún krefst eigin deiliskipulags. Það þarf engan tónlistarmann til að semja friðarsöng um þetta. Það sem sárvantar er að blaðamenn hætti að gleypa við innihaldslausum afsökunum, finni á sér punginn og krefjist svara. Hvað kostaði klúðrið, hver ber ábyrgðina og hvenær hættum við að klappa fólki á bakið fyrir að fresta framtíð ungs fólks á kostnað skattgreiðenda? Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar og áhugamaður um betra samfélag Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Sjá meira
Ég heyrði í einum fjölmiðli í vikunni að það væri kallað eftir því að tónlistarmenn fari nú að safna í sig pung, hvort sem þeir gaufa hér heima eða glansa á alþjóðlegum vettvangi, og láti loksins almennilega til sín taka í pólitík og friðarmálum. Hugmyndin er stórkostleg: gítarleikarar og poppstjörnur eiga auðvitað að semja heiminn til friðar og bjarga jarðarkringlunni milli þess sem þeir selja varning og stilla magnarann. En á meðan menningarheimurinn leitar að kjarkinum situr raunveruleikinn eftir eins og illa gerð teiknimynd. Þar virðist fjórða valdið hafa gleymt sínu hlutverki og lætur innihaldslaus svör eins og „við ætlum að læra af þessu“ duga aftur og aftur, líkt og meðvirkur aðstandandi virks alkóhólista sem trúir enn einu sinni loforðinu um að í þetta sinn verði allt öðruvísi. Við elskum góða endurtekningu á Íslandi. Garðabær minnti okkur glæsilega á forgangsröðunina þegar sérhæft meðferðarheimili fyrir fársjúk ungmenni strandaði á smámunum eins og hundrað milljóna gatnagerðargjöldum. Þetta minnir óneitanlega á kvikmyndina Groundhog Day, þar sem sami fáránleikinn rúllar aftur og aftur í endalausum hring. Fársjúk börn í lífshættu komast einfaldlega ekki á blað þegar Excel-skjal bæjarins krefst þess að aurarnir fyrir steypuna og malbikið fái forgang fram yfir mannslíf. Svo má auðvitað ekki gleyma Farsældartúni, sem var opnað með pomp og prakt fjórum dögum fyrir kosningar en reyndist svo ekkert annað en ódýr leiktjöld fyrir atkvæðaveiðar. Þá var muldrað hið klassíska loforð um að læra af mistökunum, sem er kurteisleg leið til að segja að nákvæmlega sama klúðrið verði endurtekið síðar, bara með margföldum kostnaði fyrir skattgreiðendur. Og viti menn, Hafnarfjörður tók boltann. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði ákváðu að leysa lóðamál nýs Tækniskóla með því að greiða Haraldi Sverrissyni, fyrrverandi bæjarstjóra Mosfellsbæjar, að minnsta kosti 19 milljónir króna fyrir ráðgjöf og samningaviðræður. Hver er svo uppskeran af þessum dýrindis kaffibollafundum? Lóðirnar fást ekki. Verkefninu er frestað um tvö ár eða meira. Þetta er snilldarstjórnsýsla: að henda tugum milljóna í að semja um ekki neitt, smáaurar í hinu stóra bruðlsamhengi, á meðan framtíðaráform ungs fólks eru sett á algjört HOLD! Á meðan er um þúsund iðnnemum vísað frá á ári hverju vegna plássleysis. Ungt fólk sem vill læra að smíða, rafvæða eða halda innviðum landsins gangandi fær bara hlýtt bros og frestunarbréf. Framtíð þeirra er sett á ís og verðmætin sem tapast eru ómælanleg, en huggum okkur við að Haraldur fékk allavega sinn tékka. Hvar er svo ábyrgðin? Rósa Guðbjartsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og núverandi alþingismaður, hefur að sjálfsögðu siglt fagnandi inn á þing þar sem fólk fer til að gleyma gömlum reikningum. Þegar stjórnarmenn verkefnisins eru spurðir út í heildarkostnaðinn kemur hið þægilega heyrnarleysi og engin svör fást. Leyndarhyggjan er svo þykk að hún krefst eigin deiliskipulags. Það þarf engan tónlistarmann til að semja friðarsöng um þetta. Það sem sárvantar er að blaðamenn hætti að gleypa við innihaldslausum afsökunum, finni á sér punginn og krefjist svara. Hvað kostaði klúðrið, hver ber ábyrgðina og hvenær hættum við að klappa fólki á bakið fyrir að fresta framtíð ungs fólks á kostnað skattgreiðenda? Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar og áhugamaður um betra samfélag
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun