Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Agnar Már Másson skrifar 17. september 2026 10:07 Verjendur, frá vinstri, Sveinn Andri Sveinsson, Stefán Karl Kristjánsson, Unnsteinn Örn Elvarsson, Leó Daðason, og Jón Bjarni Kristjánsson. Sá síðarnefndi er verjandi konu sem sætir aðeins upptökukröfu í málinu. Vísir Aftur varð uppi fótur og fit í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar dómari veitti sækjanda í Dettifossmálinu svokallaða heimild til að leggja fram viðbótargögn sem innihéldu myndir af amfetamínbasa. Uppnám varð í dómsalnum í gær þegar sækjandi gerði tilraun til þess að leggja gagnið fram.
Í gær komust dómari og sækjandi að samkomulagi um að bíða með framlagningu gagnsins, en það var síðan aftur lagt fram við framhald aðalmeðferðar í morgun og dómari gaf heimild fyrir framlagningunni. Fjallað var um uppákomuna við upphaf aðalmeðferðarinnar á Vísi í gær. „Þá staðfestist það að 37. grein sakamálalaga er þverbrotin þar sem ákæruvaldið er að leggja fram gögn sem verjanda er meinaður aðgangur að, bæði með úrskurði Landsréttar og samkvæmt ákvörðun héraðssaksóknara,“ lét Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars Hilmarssonar, sem grunaður er um skipulagningu fíkniefnasmygls með Dettifossi, færa til bókar. Vill að málinu verði vísað frá Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, sem sækir málið fyrir hönd Héraðssaksóknara, hafði útskýrt í gær að enga mynd af amfetamínbasaflöskunum meintu væri að finna í gögnum málsins og hún hefði því beðið rannsakendur að finna slíka mynd. Stefán Karl sagði ákæruvaldið „fabríkera einhver gögn og leggja fram“ og sagði þetta gefa tilefni til þess að leggja niður málið. Vill vita hvar gögnin fundust Sömuleiðis bókaði Leó Daðason, verjandi Kastriots Pepaj, sem einnig er ákærður fyrir skipulag innfutningsins, mótmæli og taldi einnig að brotið hefði verið gegn upplýsingaskyldu samkvæmt sömu lagagrein og Stefán Karl vísaði til. „Og þess er óskað að það verði upplýst hvar gögnin fundust, hvar þau voru varðveitt og hvers vegna þau voru ekki lögð fram fyrr,“ sagði hann. Mikið var deilt um það í dómsal í gær hvers vegna gögnin hefðu ekki verið afhent verjendum.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Smygl Fíkniefnabrot Dómsmál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira