Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar 17. september 2026 10:45 Höfuðborg Bandaríkjanna Washington, D,C á engan fulltrúa á Bandaríkjaþingi, hvorki í Öldungadeildinni né Fulltrúadeildinni. Hún er svo kallað " alríkishérað" þar sem miðstöð stjórnsýslu Bandaríkjanna er, höfuðborg allra Bandaríkjanna. Til þess að gæta hlutleysis og forðast beina hagsmunabaráttu inni á Bandríkja þingi gagnvart öðrum fylkjum og héruðum Bandaríkjanna var ákveðið í stjórnarskrá að borgin skyldi ekki hafa fulltrúa á þinginu. Um 700 þús manns búa á borgarsvæðinu. Engu að síður borga íbúarnir skatta til alríkisins eins og íbúar annarra fylkja. "Stórborgarsvæðið Washinton, D.C. er sjöunda stærsta borgarsvæði Bandaríkjanna. Frá 1973 hefur stjórn alríkishéraðsins verið í höndum borgarstjóra og 13 manna kjörins borgarráðs, en Bandaríkjaþing hefur heimild til að fella úr gildi lög alríkishéraðsins. Íbúar alríkishéraðsins hafa ekki kosningarétt á Bandaríkjaþingi, en kjósa sér einn áheyrnarfulltrúa án atkvæðisréttar í neðri deild þingsins. Kjósendur í borginni hafa þrjá kjörmenn í forsetakosningum samkvæmt 23. viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar frá 1961. ( Wilkepedia) Því er þetta nefnt hér að í nýrri skýrslu og tillögum að skipan alþingis er lagt til að fækka þingmönnum á landsbyggðinni með auknu valdi til höfðuðborgarsvæðisins. Lýðræðið getur fyrir sumum verið afstætt og ekki skal lagt mat á röksemd starfshópsins. Kannski ætti að skipta landinu aftur upp í fleiri kjördæmi þannig að nánd þingmanna við land og þjóði yrði meiri frá innstu dala til ystu stranda. Öll ríki Sameinuðuþjóðanna hafa reyndar eitt atkvæði óháð stærð. Mismunandi atkvæðisrétt er verið að taka upp innan Evrópusambandsins eftir stærð þjóða. Reykjavík er höfuðborg allra landsmanna Hér væri líka ágætt að velta fyrir sér sama fyrikomulagi og í Bandaríkjunum. Reykjavík, höfðuborg landsins með alþingi, öll ráðuneyti og stjórnsýslustofnanir. Háskóla landsins og æðstu dómstóla, fjármálastofnanir og landsjúkrahús svo mætti áfram telja, væri skilgreind sem höfuðborg þjóðarinnar allrar, eins og hún er, og þá án sérstakra þingmanna á Alþingi Íslendinga eins og Bandaríkin hafa það. Nú hefur starfshópur skilað áliti um nýjan skipan alþingis. Ísland er að þróast í borgríki, ekki aðeins hvað varðar búsetu heldur einnig í þjóðfélagsvitundinni og í hugum borgarbúa sjálfra. og landsmanna allra Ekki er við einstaka borgarbúa að sakast, en það gæti verið frumlegra að skipa starfshóp, einn frá Langanesi, einn frá Höfn í Hornafirði einn frá Vestmannaeyjum og einn frá Ísafirði í að vinna tillögur um skipan kjördæma og þingmanna á alþingi Íslendinga. Menn sem vilja slá sig til riddara og sem álitsgjafa í þjóðfélagsumræðunni finnst of ágætt að tala niður til landsbyggðarinnar. Maður verður enn meir hugsi og skilur betur rökin fyrir stöðu höfuðborgar Bandaríkjanna þegar svon tillögur koma fram. Til þjóðarsáttar hefur Washington engan eigin þingmann á Bandaríkjaþingi og enginn talar um að flytja þaðan þess vegna Nýjasta þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að ESB og skifting atkvæða milli landsvæða sýnir því miður að bilið breikkar á milli höfuðborgar og landsbyggðar.. Talað var niður til landsbyggðarfólks sem væri ómenntaður bændalýður eða sjávarþorpsbúar sem hefðu ekkert vit á hvað þeim væri fyrir bestu og m.a. hafnað aðild að ESB.. Skattar á fjarlægðir aðal tekjustofn ríkisins Einn aðal tekjustofn ríkissjóðs eru skattar á fjarlægðir frá höfuðborginni, kílómetragjald, oliíugjöld osfv, flutningsgjöld, skólagjöld, sérhæfð læknisþjónusta. Og enn er gefið í : Því lengra frá höfuðborginni, því hærri skattlagning. Samtímis er þjónustunni safnað og safnað saman í Borgríkinu Reykjvík. Það er leitun að auglýsinga skiltum eða upplýsingum á íslensku á götum eða í búðargluggum höfuðborgarinnari. Það verður að grípa til rótækra aðgerða. Liður í því væri að fara að dæmi Bandaríkjamanna og höfuðborgin væri höfuðborg allra landsmanna og gæfi eftir fulltrúa sína á alþingi til landsbyggðarkjördæmanna á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi. Kjördæmum mætti skipta upp í önnur minni til þess að auka nánd þingmanna við landið og þjóðina alla. Höfundur er fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjördæmaskipan Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun